Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Page 213
213
sjá fullkomna talning á öllum þessum lesköflum í öllum
þeirra myndum i Textkritik Gregorys.
Handrit af lesbókum liafa verið talin 1565 alls. Eru lang-
flest þeirra guðspjallabækur. Nokkrar eru með bæði guð-
spjalli og' postula, og enn aðrar aðcins með postula-lesköfl-
unum. Er talsvert langt frá því, að þetta liafi allt verið rann-
sakað til fullnustu. Handritin eru tö'lusett, og skipt í flokka.
Þess er að gæta, að þó að handrit þessi sé ekki sérlega göm-
ul, geta þau verið gerð eftir mjög fornum handritum, og þau
eru yfirleitt mjög vönduð. Textarnir eru óbreyttir að öðru en
því, að stundum er aukið framan við þá sv sy.sírco toj y.aígm,
á þeim tíma, eða slnsv 6 Kúoiog, drottinn sagði o. s. frv. Stund-
um er og eiginnafn sett í stað fornafns, til þess að gera kafl-
ann skiljanlegan, þótt tekinn sé úr sambandinu við það, sem
er á undan, eða í stað: „eftir þetta“ er sett, hvaða viðburð er
átt við. Þá kemur og fyrir, að blandað er saman frásögnum
samstofna guðspjallanna.
Hér verður nú ekki farið út í að lýsa einstökum handrit-
um þessara lesbóka. Dobscliiitz telur þessi elzt (allt guð-
spjallahandrit):
1276, 1347 og 1354 frá 6. öld, 243, 1348 og 1353 frá 7. öld og
689, 1485 og 36 (þó með nokkrum vafa) frá 8. öld.
Vfirlit.
Ef vér teljum nú saman öll grísk liandrit og handritabrot
af Nýja-testamentinu, liverrar tegundar sem eru, þá verðiir
útkoman sem næst þessu:
Leirflögur ................... um 20
Papyri .................. allt að 40
Stórstafa-handrit..............um 168
Smástafa-handrit .............. — 2352
Lesbókahandrit ............... —- 1565
Alls um 4145