Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1980, Síða 16
14
Árbók Háskóla íslands
helmingi af tekjum stofnunarinnar er ætlað
að koma frá aðiljum utan háskólans.
Brýnt er að grunnrannsóknir sitji ekki á
hakanum. Ég tel að leggja verði meiri
áherslu á þjónusturannsóknir en verið hef-
ur, enda verði það jafnframt til þess að efla
grunnrannsóknir. Lykillinn að því að svo
megi verða er sá, að hluta af þeint hreinu
tekjum sem aflað verðuraf útseldri þjónustu
verði varið til undirstöðurannsókna, jafn-
framt því sem einstaklingarog stofnanir sjái
sér hag í því að sinna slíkum verkefnum. Þá
verður að gæta þess að hvorki sé bein sam-
keppni við aðila utan háskólans um verkefni
né undirboð. En á ýmsum sviðum á háskól-
inn einn á að skipa mannafla og þekkingu til
þess að stunda rannsóknir, hvort sem um
útselda þjónustu eða grunnrannsóknir er að
ræða.
Gjafirtil háskólans
Okkur háskólans mönnum finnst oft gæta
tómlætis í garð þeirra sem leyfa sér að
skyggnast langt inn í framtíðina, kanna
dýpstu rök tilverunnar og eyða starfsævi
sinni í að miðla nemendum af samansafn-
aðri lífsreynslu margra kynslóða.
En þolinmæðin þrautir vinnur allar. Það
er háskólanum mikill heiður og hvatning að
hafa fengið stórgjafir frá einstaklingum,
sem vilja styrkja hann í verki, auðga hann að
fegurð og leggja rækt við æsku þessa lands.
Með gjafabréfi 7. desember sl. færðu erf-
ingjar Ludvigs Storr, þær Svava Storr og
Anna Dúfa Storr, háskólanunt fasteignina
Laugaveg 15 í Reykjavík að gjöf. Tekjum af
húseigninni skal varið til að stuðla að fram-
förum á sviði jarðefnafræði, byggingariðn-
aðar og skipasmíða með því að styrkja vís-
indamenn á sviði jarðefnafræða, verkfræð-
inga, arkitekta, tæknifræðinga og iðnaðar-
menn til framhaldsnáms, svo og veita styrki
til rannsókna á hagnýtum úrlausnarefnum í
þessum greinum. Stjórn Menningar- og
framfarasjóðs Ludvigs Storr ákvað á fundi
sínum í gær að auglýsa styrki lausa til um-
sóknar á seinni hiuta þessa árs.
Ludvig Storr hafði óbilandi trú á framtíð
íslands. Hann var þess fullviss að landið
hefði að geyma auðlindir sem enn væru lítt
rannsakaðar og þar væru aðkallandi verk-
efni til úrlausnar. Einnig barhann bygging-
ariðnað og skipasmíði fyrir brjósti og taldi
mikilvægt fyrir þjóðarhag að örar framfarir
yrðu í þeim starfsgreinum.
Og nú á þessari stundu er einkar ánægju-
legt að taka á móti málverkagjöf hjónanna
Ingibjargar Guðmundsdóttur og Sverris
Sigurðssonar og lýsa hér með opna sýningu
á málverkunum í hátíðasal háskólans og
anddyri. Jafnframt er öllum viðstöddum
boðið að skoða sýninguna að þessari athöfn
lokinni. Safn það sem sýnt er hefur að
geyma frumgjöf þeirra hjóna, 95 myndverk.
Stærsti hluti þess, eða 70 myndir, er eftir
Þorvald Skúlason listmálara, og veita þær
góða yfirsýn yfir feril hans frá árinu 1923 til
líðandi stundar. Einnig eru í safninu 25
myndir eftir 20 merka listamenn. Með gjöf-
inni erstofnað Listasafn Háskóla fslands, og
mun það hafa til ráðstöfunar fé til lista-
verkakaupa sem nemur 1% af nýbyggingar-
fé háskólans á ári hverju.
Megi þessar stórgjafir, sem hér eru þakk-
aðar af heilum huga, verða Háskóla fslands
og gefendum til góðs um ókomin ár.
Þá vil ég einnig færa kærar þakkir fyrir
gjöf samkvæmt erfðaskrá Theodórs John-
son, fyrrum hótelstjóra, sem færði háskól-
anum og Skógrækt ríkisins að gjöf húseign-
ina Bergstaðastræti 50A ásamt verðbréfum.
Tekjurn Minningarsjóðs Theodórs Johnson
skal varið til að styrkja efnilega en efnalitla
stúdenta til náms við Háskóla fslands eða til
framhaldsnáms erlendis.
Einnig færi ég hjónunum Gyðu Jóns-
dóttur og Ottó A. Michelsen kærar þakkir
fyrir fjárframlag í tilefni sextugsafmælis
Ottós 10. þ.m. Skal fénu varið til að styrkja
gerð orðstöðulykils að hinni nýju íslensku
Biblíu. Slíkur orðstöðulykill ætti að geta