Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1980, Side 78

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1980, Side 78
76 Árbók Háskóla íslands vera leystur frá því starfi. í stað hans var kjörinn Stefán Sörensson háskólaritari. 11.09.80 Háskólabíó Reikningar Háskólabíós fyrir árið 1979 voru fram lagðir og samþykktir án athuga- semda. Kjör eins manns í stjóm Háskólabíós til tveggja ára, svo og kjör tveggja endurskoð- enda: í stjórn var kjörinn Þórir Einarsson prófessor. Endurskoðendur voru kjörnir til eins árs Árni Vilhjálmsson prófessor og Steingrímur Baldursson prófessor. 21.08.80 11.09.80 Framkvæmdir Rektor gerði grein fyrir stöðu skipulags- mála á háskólalóð. Kom fram, að teikning- um að Hugvísindahúsi miðar svo, að til út- boðs gæti komið í aprílmánuði, ef ekki stæði á samþykki viðkomandi yfirvalda. (Sam- starfsnefnd um opinberar framkvæmdir heimilaði útboð á fyrsta hluta bygginga- framkvæmda skv. bréfi mrn. dags. 8. sept- ember 1980.) Einnigerunniðað teikningum Raunvísindahúss. 21.02.80 11.09.80 Endurskoðuð framkvæmdaáætlun fyrir árið 1980 var lögð fram og rædd. Rektor skýrði breytingar þær, sem gerðar hafa verið á áætluninni. Til umráða er kr. 290 millj. umfram það, sem áætlað hafði verið. Stafar það af minni framkvæmdahraða á árinu 1979 en ráð hafði verið fyrir gert, auknum vaxtatekjum Happdrættis Háskóla Islands og aukningu í veltu þess. Svofelld ályktun var samþykkt sam- hljóða: „Háskólaráð samþykkir, að unnið verði samkvæmt endurskoðaðri framkvæmda- áætlun fyrir 1980, dags. 6. mars. í henni felst m.a., að hraðað verði framkvæmdum á Landspítalalóð þannig, að sem lengst verði komist með að ljúka fjórum lotum í stað þriggja fyrir árslok 1982. Að höfðu samráði við yfirstjóm mannvirkjagerðar á Landspít- alalóð er talið rétt að óska eftir, að upp- steypa á suðurkjarna byggingar nr. 7 geti hafist sem fyrst. Fé sem varið verður til framkvæmda á Landspítalalóð á árinu 1980, umfram það sem henni er reiknað af nýbyggingafé, eða umfram 386 m.kr. skv. áætlun, skal endur- greiðast á árinu 1981 með sömu meðalvöxt- um og Byggingasjóður nýtur . ..“ 13.03.80 Lagt fram bréf yfirstjómar mannvirkja- gerðar á Landspítalalóð, dags. í dag, þar sem farið er fram á, að ráðstafa megi til Landspítalalóðar kr. 130 millj. hærri upp- hæð af byggingafé háskólans á árinu 1980 en fyrri áætlun gerir ráð fyrir. Gerir yfir- stjóm ráð fyrir endurgreiðslu þessarar fjár- hæðar til ráðstöfunar til bygginga á há- skólalóð á næsta ári með sömu meðalvöxt- um og Byggingasjóður nýtur. Háskólaráð féllst á umbeðna tilfærslu með því fororði, að ekki kæmi til tafa á fyrirhuguðum framkvæmdum á háskólalóð af þessum sökum. 14.05.80 Skipulagsnefnd Háskóla íslands ákvað á fundi sínum 19. febrúar 1980 að óska eftir því við teiknistofu Alvars Aalto í Helsing- fors, að hún tæki að sér endurskoðun skipulagstillagna fyrir miðsvæði háskólans. Halldórsstaðir Gunnar G. Schram lagði til, að háskóla- ráð heimilaði rektor að leita eftir því við stjórn Laxárvirkjunar, hvort húseign virkj- unarinnar á landi háskólans á Halldórs- stöðum í Laxárdal muni föl til kaups. Sam- þykkt samhljóða. (Sbr. Árb. H.í. 1973—76, bls. 215.) 29.01.80
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.