Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1980, Síða 82
80
Árbók Háskóla íslands
Rektor gerði frásögn þessa að umræðu-
efni og gagnrýndi það, að frá hefði verið
greint, hvernig ákveðnir háskólaráðsmenn
hefðu varið atkvæðum sínum í tilteknu
máli. Ennfremur að höfð hefðu verið eftir
ummæli háskólaráðsmanna á villandi hátt.
Taldi hann, að aðalreglan ætti að vera sú, að
fundargerð háskólaráðsfunda ætti að vera
hin opinbera heimild um það, sem fram fer
á fundunum.
Forseti lagadeildar greindi frá því, hvaða
venjur hefðu jafnan gilt í þessum efnum i
háskólaráði, þótt hvergi væru skráðar.
Stuttar umræður urðu um þennan dag-
skrárlið. Tveir af fulltrúum stúdenta í há-
skólaráði lögðu fram svofellda yhrlýsingu:
„ Yfirlýsing
Við teljum okkur heimilt og skylt að skýra
frá því sem fram fer á fundum háskólaráðs
vegna þess að
— við erum kosnir af stúdentum i allsherjar
atkvæðagreiðslu og erum því fulltrúar
þeirra. Seta okkar í ráðinu er því ekkert
einkamál. Við teljum okkur skylt að skýra
frá því sem fram fer á fundum.
— Við lítuni ekki á háskólaráð sem neina
leynisamkundu. Ákvarðanir háskólaráðs
eiga að vera þannig úr garði gerðar að þær
þoli opinbera umræðu. Við slíka umræðu er
mikilvægt að öll atriði sem fram koma á
fundum ráðsins séu tekin inn í myndina,
bæði það sem sagt er og eins það sem lagt er
fram sem gögn.
— Við neitum að fallast á að vera bundnir
þagnarheiti um mál sem við teljum varða
hagsmuni skólansog nemenda, mál sem ekki
geta talist snerta eina persónu eingöngu. Við
lýsum þvi yfir að við munum hefja uniræðu
um slík mál hvenær sem við teljum þörf á.
Jón Guðmundsson
Stefán J. Stefánsson."
Ennfremur lögðu þeir fram svohljóðandi
tillögu ásamt greinargerð. en umræðu og
afgreiðslu var frestað:
„Reykjavík, 29. maí 1980.
Háskólaráð,
Háskóla íslands
Við undirritaðir leggjum fram eftirfar-
andi tillögu:
Háskólaráð samþykkir að þeirri megin-
reglu skuli fylgt, að fundir þess skuli haldnir
í heyranda hljóði. Skal kennurum, starfs-
mönnum og nemendum skólans heimilt að
fylgjast með fundum. Skulu fundir því aug-
lýstir opinberlega. Ráðið samþykkir að rit-
stjórum Stúdentablaðsins og ritstjóra Ár-
bókar Háskóla íslands, þegar og ef hann
verður ráðinn, skuli sérstaklega tilkynnt um
fundi. Skal þeim heimilt að hafa meðferðis
ljósmyndavélar og segulbönd. Frávik frá
þessari meginreglu getur ráðið aðeins sam-
þykkt þegar tekin eru til umfjöllunar mál
sem snerta aðeins einstaklinga á mjög per-
sónulegan hátt og sem hafa ekki fordæmis-
gildi.
Greinargerð
Þar sem háskólaráð er sú stofnun innan
skólans sem fjallar um allar helstu ákvarð-
anir hans eða tekur þær, ákvarðanir sem oft
snerta skólann í heild, er eðlilegt að allir
kennarar, starfsmenn og nemendur skólans
hafi tækifæri til að fylgjast með umfjöllun
mála.
Þar sem fundir ráðsins eru jafnan haldnir
á þeim tímum sem flestir eru við vinnu sína
skal ritstjóra Árbókar og sérstaklega rit-
stjórum Stúdentablaðsins boðið að vera
viðstaddir fundi.
Jón Guðmundsson.
Stefán J. Stefánsson."
29.05.80
Tekin var til umræðu tillaga Jóns Guð-
mundssonar og Stefáns J. Stefánssonar um
opnun funda háskólaráðs, en tillaga þessi
kom fram í háskólaráði 29. maí s.l.
Stefán .1. Stefánsson gerði grein fyrir til-
lögunr.i.