Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Side 17
Ræöur rektors Háskóla íslands
15
þessar myndir sýndar í sjónvaipi og seldar
framhaldsskólum. Fjarkennsla eða skólasjón-
varp hófst 19. mars s.l. í tilraunaskyni, og ætti
skólasjónvarpið að geta orðið mikilvæg lyfti-
stöng fyrir allt skólakerfið á næstu árum. Stefnt
er að fjarkennslu á vegum Háskóla Islands
næsta haust.
Eitt af vandamálum Háskóla íslands er ó-
leyst enn, en það er skipulag háskólasvæðisins,
einkum hvað varðar greiðari umferð að og frá
háskólasvæðinu og jafnframt milli vinnustaða
Háskólans á Landspítalalóð og annarra vinnu-
staða á Háskólalóðinni. Háskóli íslands hefur
reist fimm hæða byggingu fyrirLæknadeild og
Tannlæknadeild, og er sú bygging hin fyrsta af
fleiri slfkum sem verða munu rannsókna- og
kennslubyggingar Háskólans fyrir líf- og lækn-
isfræði í framtíðinni. Nauðsynlegt er að eðli-
leg umferðartengsl verði á milli þessa hluta
Háskólans og annarra kennslubygginga á Há-
skólalóðinni. Væntanleg færsla Hringbrautar
suður fyrir Umferðarmiðstöðina mun hins veg-
ar mynda alvarlega hindrun fyrir skjóta og eðli-
lega umferð gangandi og akandi vegfarenda
milli háskólabygginga.
Jafnframt er þörf greiðari umferðarleiða að
°g frá Háskólalóð austan Suðurgötu bæði fyr-
tr gangandi vegfarendur úr miðbænum og fyr-
Ir bílaumferð. Háskóli Islands er vinnustaður
6000-7000 manna og umferð því erfið á anna-
límum og í raun mikil slysahætta samfara nú-
verandi fyrirkomulagi. Skipulag háskólasvæð-
isins tekur einnig til fleiri þáíta, það tekur
til gróðursvæða og byggingarlands. Viðhorf
manna breytast með tímanum, og hugmynd-
lr og lausnir gærdagsins eru oft óviðunandi
1 dag. Nú viljum við varðveita grænu svæð-
in og raunar friða land og fegra í meira mæli
en áður þótti við hæfi. Verður Melavöllurinn
brátt iðgrænn völlur, þakinn grasi, runnum og
öðrum gróðri með skokkbrautum fyrir þá sem
nota vilja. Skipulagshugmyndir Alvars Aalto,
þar sem gert var ráð fyrir að eyðileggja Skeif-
nna fyrir framan Aðalbyggingu Háskólans og
reisa röð húsa frá norðurenda Háskólabygg-
ingar austur fyrir Gamla Garð, koma vonandi
aldrei til framkvæmda. Tfmabært er að stækka
friðaða svæðið fyrir framan Háskólabygging-
una, frá þeirri byggingu suður að NoiTæna hús-
inu og austur að Njarðargötu. Þetta svæði verð-
ur innan tíðar gróðurmeira og fegurra, til yndis-
auka fyrir vegfarendur jafnt og heimamenn.
Vert er að vekja athygli á því skipulagi sem
samþykkt hefur verið fyrir Landspítalalóð og
telja verður úrelt. Þar er gert ráð fyrir að
reisa fjölda samtengdra bygginga á stærð við
hús læknadeilda Háskólans. Gert er ráð fyrir
að reisa slíkar byggingar þvert yfir núverandi
Hringbraut og einnig fyrir framan gamla Land-
spítalann, sem hverfur þannig sjónum manna.
Framtíðarsýn þessa svæðis er ömurleg og verð-
ur vonandi ekki að veruleika.
Ljóst er að leysa verður umferðarvandamál
Reykjavíkurborgar og skipulagsvanda stórra
stofnana eins og Landspítalans og Háskóla
íslands. Lausnir gærdagsins verður að end-
urmeta, því nú leggja menn meiri áherslu á
umhverfismál, á græn og gróðursæl svæði, á
mengunarvamir og heilbrigðari lífshætti. Nýj-
ar leiðir og lausnir verður að finna og virða
óskir samborgaranna og vonir um betra mann-
líf.
Þann 15. júlí n.k. er aldarafmæli prófess-
ors Alexanders Jóhannessonar fyrrverandi há-
skólarektors. Að öðrum ólöstuðum er Alex-
ander Jóhannesson sá maður sem hefur ver-
ið happadrýgstur Háskóla íslands. Er nú verið
að vinna að gerð heimildarmyndar um Alex-
ander Jóhannesson, ævi hans og störf, og mun
sú kvikmynd verða verðugur minnisvarði um
þennan merka athafnamann sem reyndist far-
sæll frumkvöðull og kom m.a. Happdrætti Há-
skóla íslands á laggimar.
íslenska þjóðin er svo lánsöm að eiga á
hverjum tíma framúrskarandi einstaklinga,
karla og konur með hugsjón og framsýni. Slíka
menn var Háskóli Islands að heiðra í dag með
því að sýna þeim þann mesta sóma sem hann
getur veitt, en það er að veita doktorsnafnbót í
heiðursskyni. Þakka ég þessum mætu mönnum
þann sóma sem þeir sýna Háskóla Islands með
því að þiggja þennan virðingarvott.