Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Blaðsíða 18
16
Árbók Háskóla fslands
Kœru kandídatar!
Dagurinn í dag er ykkar, nú munuð þið veita
viðtöku prófskírteini úr hendi deildarforseta
og fá þannig staðfestingu á því að langþráðu
marki er náð. Háskóli Islands óskar ykkur og
fjölskyldum ykkar til hamingju með árangur-
inn og þakkar ykkur samstarfið á liðnum árum.
Háskólaprófið er vissulega mikilvægur áfangi,
en þó aðeins áfangi á lífsleiðinni. Sum ykk-
ar munu fara til framhaldsnáms við erlenda
háskóla, aðrir fara til margvíslegra starfa hér
heima. Þið sem farið utan til náms eða starfs
hugsið oft heim, heim til íslands. Því er svo far-
ið um flest okkar að við viljum lifa og starfa á
Islandi, þrátt fyrir rysjótt veður og verðbólgu. í
mannhafi stórþjóða virðist hver einstakur litlu
máli skipta, en hér hjá þessari fámennu þjóð
er framlag hvers einstaklings mikils virði, og
hann getur auðveldlega haft áhrif á þróun eig-
in þjóðfélags. Það er einkum um hlutverk þitt,
kæri kandídat, sem ég vildi ræða hér í dag.
Háskóli Islands leggur einkum áherslu á varð-
veislu, miðlun og öflun þekkingar, en vera má
að einn veigamikill þáttur f starfi Háskólans sé
vanræktur, en það er að örva menn til sjálf-
stæðrar hugsunar um lífið og tilveruna en ekki
bara fræðin. Og nú vil ég hvetja þig til að hugsa
um hlutverk þitt, rétt þinn og skyldur sem á-
byrgur þjóðfélagsþegn. Þér ber í raun að taka
virkan þátt í þróun þessa þjóðfélags og það
fyiT en síðar. Þú hefur ef til vill stofnað heim-
ili nú þegar og eignast barn sem brátt fer f
skóla. Þú átt að sýna skólastarfinu áhuga og
veita stuðning ef því verður við komið, t.d.
með þátttöku í foreldra- og kennarafélagi skól-
ans. Þau mál sem varða þig og þína fjölskyldu
miklu eru m.a. atvinnumál, heilbrigðismál og
skólamál. Þú getur haft áhrif á þessi mál með
ýmsum hætti, sem einstaklingur og sem með-
limur í samtökum ýmiss konar. Það er vissu-
lega óheppileg þróun ef minna en helmingur
kjósenda tekur þátt í starfi stjómmálafiokka, en
á vettvangi stjómmála eru ræddar og mótað-
ar hugmyndir manna um gerð og gæði þjóð-
félagsins. Vertu virkur í mótun eigin samfélags
en vertu ekki aðgerðalaus áhorfandi. Gott þjóð-
félag verður ekki til af sjálfu sér, það verður
til vegna þrotlausrar baráttu liðinna kynslóða
og samtíðarmanna. Þér er annt um umhverfi
þitt og þinna bama, taktu þátt í að móta þetta
umhverfi hvar sem þú býrð á landinu, þetta
er einnig þitt land. Láttu ekki sveitarstjómar-
menn eina um að móta umhverfi þitt, þú verð-
ur að taka þátt f baráttunni fyrir betra lífi fyr-
ir þig og þína fjölskyldu. Ef bú vilt ómengað
loft og vatn, ómengaðan mat og útivistarsvæði,
þá verður þú, kæri kandídat, að leggja þitt af
mörkum til að svo verði. Lífsgæðin eru ekki í
launaumslaginu einu saman. Þú ert einn af á-
höfn þjóðarskútunnar en ekki farþegi, láttu því
hendur standa fram úr errnum.
Þjóðskáldið Matthías Jochumsson segir svo
á einum stað í ljóðinu „Islands minni":
Eitt er iandið, ein vor þjóð,
auðnan sama beggja,
eina tungu, anda, blóð
aldir spunnu tveggja.
Saga þín er saga vor,
sómi þinn vor æra,
tár þín líka tárin vor,
tignar-landið kæra.
Og ennfremur segir skáldið í sama ljóði:
Græðum saman mein og mein,
metumst ei við grannann.
Fellum saman stein við stein,
styðjum hverjir annan.
Plöntum, vökvum rein við rein,
ræktin skapar framann.
Hvað má höndin ein og ein?
Allir leggi saman.
Kæri kandídat. Farsæld þín og frami mun
mótast verulega af hæfileika þínum til sam-
starfs og af hæfileika þínum til að skapa frjó
tengsl við aðra utan vinnustaðar þíns. Ræktaðu
þessa hæfileika og einnig víðsýni, hæfileikann
til að sjá út fyrir eigið sérfræðisvið og gera sér
m.a. grein fyrir áhrifum og afleiðingum eigin
verka á samfélagið og umhverfið.