Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Síða 96
94
Árbók Háskóla íslands
albyggingu. Þangað flytur einnig eðlisfræði
læknadeildar. Við þessa flutninga fær líffræð-
in aukið rými á Grensásvegi, lyfjafræði lækna
flytur í Armúla 30, lyfjafræði lyfsala fær auk-
ið rými í kjallara Aðalbyggingar og jarðfræðin
fær einnig aukið rými í kjallara Aðalbygging-
ar. Stjómsýsla fær aukið rými á 1. hæð Aðal-
byggingar, og verður starfsemi stjómsýslu end-
urskipulögð með hliðsjón af auknu húsnæði og
möguleikum á aukinni hagræðingu.
I Armúla 1 hefur veirufræði læknadeildar
fengið mjög góða aðstöðu, og við frekari inn-
réttingu á því húsi skapast aðstaða fyrir örveru-
fræði líffræðiskorar.
I haust flytja í Tæknigarðinn Reiknistofnun,
eðlisfræði og jarðeðlisfræði, svo og tölvunar-
fræðikennarar. Rýmkast þá um efnafræðistofu,
reiknifræðistofu og stærðfræðistofu á Raunvís-
indastofnun og í Loftskeytastöðinni gömlu.
Aformað er að ljúka byggingu Odda á tveim-
ur árum og ætti það húsnæði að létta vanda hug-
og félagsvísindamanna um tíma en næg verða
verkefnin á næstu árum.
III. Kjaramál
Kjarasamningar eru í höndum Félags há-
skólakennara, og skipaði háskólaráð launa-
málanefnd til að reyna að samstilla viðleitni
Félags háskólakennara og yfirstjómar Háskól-
ans í þessum efnum.
I kjarasamningum félagsins náðist veruleg-
ur árangur miðað við þann ramma sem há-
skólakennurum er búinn innan launakerfis rík-
isstarfsmanna, en menn eru ætíð ósáttir við
launakjör sfn.
Háskólaráð samþykkti í upphafi síðasta árs
að lækka kennsluskyldu með aldri, úr 48% af
vinnutíma í 38% við 55 ára aldur og úr 38% í
28% af vinnutíma við 60 ára aldur. Þá var yfir-
vinnuþak hækkað úr 48 klst. í 60 klst. á mánuði.
Þótt hærri grunnlaun væri ákjósanlegasta
lausnin til að tryggja viðunandi laun þá er slík
lausn ekki í sjónmáli. Engu að síður geta kenn-
arar unnið til viðbótarlauna með eftirfarandi
hætti:
1. Yfirvinna vegna kennslu og/eða
rannsókna.
2. Ritlaun fyrir útkomnar ritsmíðar.
3. Launaaukar vegna rannsókna, tvenn
mánaðarlaun.
4. Greiðslur fyrir nefndarstörf.
5. Launaflokkahækkanir samkvæmt
framgangskerfi.
6. Launaflokkahækkanir prófessora
vegna fræðistarfa.
Framgangskerfið verkar, og hafa allmargir
dósentar hlotið verðskuldaða stöðuhækkun nú
þegar og verið hækkaðir í prófessorsstöður, en
önnur slík mál eru í höndum dómnefnda.
Vinnureglur varðandi launaflokkahækkanir
prófessora voru samþykktar í háskólaráði í fe-
brúar, og sérstök ráðgjafanefnd var skipuð und-
ir formennsku prófessors Höskulds Þráinsson-
ar. Mun nefndin senda upplýsingar þar að lút-
andi til prófessora, og verða verðskuldaðar
launahækkanir greiddar frá 1. mars s.l. Verða
menn að hafa biðlund því vel þarf að vanda til
vinnubragða ef framhald ætti að verða á slíkum
launaflokkahækkunum.
Launamál háskólakennara og annarra starfs-
manna verða vafalítið framvegis sem hingað til
meðal erfiðustu vandamála Háskólans að glíma
við. Við Háskólann starfa 78 lektorar (þar af 31
í hlutastarfi), 102 dósentar (þar af 45 í hluta-
starfi), 104 prófessorar og 1050 stundakenn-
arar. Kennsla stundakennara er 45% af allri
kennslu.
IV. Kennslumál
1. Unnið er að því að auðvelda framhalds-
skólanemendum undirbúning undir háskóla-
nám og gera slíkan undirbúning markvissari.
a) Háskóladeildir hafa skilgreint æskileg-
an undirbúning nemenda fyrir háskólanám, og
hafa leiðbeiningar fyrir framhaldsskólanem-
endur verið gefnar út af Menntamálaráðuneyt-
inu og Háskóla íslands.
b) Kynningarmyndir um háskóladeildir eru
í undirbúningi, þar sem nám og starf í deild-
um er kynnt nánar. Verða þessar myndir sýnd-