Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Page 97
Annáll
95
ar í sjónvarpi og sendar/seldar framhaldsskól-
um. Kynningarmynd um lagadeild er að verða
iokið og myndatökur um raunvísindadeild eru
að hefjast. Undirbúningar að mynd um verk-
fræðideild er langt kominn og hafinn er undir-
búningur að gerð mynda um guðfræðideild og
læknadeild.
c) Sérstök kynningarmynd um námsráðgjöf
er í undirbúningi, en framkvæmd annast náms-
ráðgjafar Háskólans og dr. Sigrún Stefánsdótt-
ir, framkvæmdastjóri fjarkennslu. Áformað er
að sýna þessa mynd í maí n.k.
2. Fjarkennsla eða skólasjónvarp hófst form-
lega 19. mars s.l. í tilraunaskyni. Stefnt er að
fjarkennslu á vegum Háskóla íslands næsta
haust og hefur dr. Jón Torfi Jónasson unnið
hér merkilegt starf en hann er formaður fjar-
kennslunefndar Menntamálaráðuneytisins og
einnig fjarkennslunefndar Háskóla íslands.
3. Kennaramenntunamefnd var skipuð af há-
skólaráði að tillögu Kennslumálanefndar. Þess-
ari nefnd er einkum ætlað að efla kennara-
mennlunarhlutverk Háskólans. En gagnrýni
hefur komið fram, einkum varðandi undirbún-
ing kennslu í íslensku og stærðfræði.
4. Úttekt á kennslu og starfsháttum verk-
fræðideildar af hálfu nefndar á vegurn Verk-
fræðingafélags íslands er lokið. Verkfræði-
deild á lof skilið fyrir að takast á við slíkan
vanda því að frumraunin er erfiðust. Verður nú
metið hvemig brugðist verður við ábendingum
nefndarinnar og hvema úrbóta er þörf.
Reynslan af þessu starfi er notuð til að móta
leiðbeiningar fyrir deildir um sjálfsmat og út-
tektir. Starfi þessu stjómar Þróunamefnd undir
formennsku prófessors Þóris Einarssonar.
5. Endurskoðun á vinnumati vegna kennslu
er hafin að nýju. Tillögur frá Kennslumála-
nefnd eru í athugun hjá sérstakri vinnunefnd
háskólaráðsmanna.
6. Rannsóknir á brotthvarfi nemenda frá
námi eru í undirbúningi á vegum Kennslumála-
nefndar.
7. Undirbúningur að nárni til meistaraprófs
er með tvennum hætti. Háskólaráð undirbýr til-
lögur um nauðsynlegar reglugerðarbreytingar
þegar og ef þeirra er þörf. Háskóladeildir eru
hvattar til að gera tillögur um tilhögun meist-
aranáms og gera jafnframt tímaniega ráð fyrir
sliku námi í fjárveitingabeiðnum.
V. Rannsóknir
1. Rannsóknasjóður hefur verið efldur vem-
lega. Fjárveiting hefur aukist úr 12,7 m.kr.
1987 í 34,2 m.kr. 1988. Vænta má aukinna
tekna af 10% rannsóknaskatti af þjónustu-
verkefnum, en nú munu bæði Stofnun Áma
Magnússonar og Raunvfsindastofnun greiða
helming af álögðum rannsóknaskatti í Rann-
sóknasjóð Háskólans.
Fjárveitingar úr sjóðnum eru á verkefna-
grundvelli og kröfur gerðar um vandaðan und-
irbúning rannsókna og skil á framvinduskýrsl-
um. Ráðstöfun á fé úr sjóðnum tekur einung-
is mið af vísindalegu gildi verkefna og hefur
þegar orðið mikii lyftistöng fyrir allar grunn-
rannsóknir við Háskóla Islands. Vísindanefnd
annast stjómun þessara mála undir foimennsku
prófessors Sveinbjörns Björnssonar en fram-
kvæmdastjóri er Stefán Baldursson.
2. Rannsóknaskrá Háskólans verður gefin út
í ársbyrjun 1989 og mun hún ná yfir rannsóknir
á árunum 1987 og 1988.
3. Rannsóknaþjónusta Háskólans hefur tek-
ið til starfa. Unnið er að frekari kynningu á
starfinu hjá stærri fyrirtækjum. Aðstoð við gerð
rannsóknasamninga er þegar hafin. Stjómar-
formaður Rannsóknaþjónustunnar er prófessor
Valdimar K. Jónsson.
4. Hlutafélagið Tæknigarður var stofnað á
liðnu ári. Verkefni hlutafélagsins er bygging
og rekstur tæknigarðs þess sem verið er að
byggja hjá Raunvísindastofnun. Hluthafar em
Reykjavíkurborg, Háskóli Islands, Þróunar-
félag íslands, Tækniþróun hf., Félag fslenskra
iðnrekenda og Iðntæknistofnun Islands. For-
maður stjórnar er prófessor Ragnar Ingimars-
son.
VI. Alþjóðasamskipti
Lögð hefur verið áhersla á að korna betra
skipulagi á samskipti Háskóla íslands við er-