Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Page 11
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 5
Auk þess verður að draga hér frá 7 félög, kaupfélög og
sláturfélög, sem að vísu eru nefnd hlutafélög, en hafa
breytilega félagatölu og breytilegan fjárstofn. Innlend
hlutafélög, sem tilkynt hafa verið, verða þá 147. Um
aldur þessara félaga er það að segja, að aðeins 6 þeirra
eru stofnuð fyrir árið 1900, þar af eitt 1870, og hin á
árunum 1894—1899. Eftir aldamótin og fram til 1914
koma 1—8 ný félög á hverju ári, en úr því fer þeim að
fjölga, og eru stofnuð:
1915 13 félög
1916 14 —
1917 3 —
1918 8 —
1919 23 —
1920 8 —
Um aldurinn er hér farið eftir því, sem tilkynt er
um dagsetningu samþykta, en það atriði vantar í til-
kynningu 9 félaga.
Eins og vænt mátti eru langflest félögin í Reykja-
vík, 89 talsins. Næst er Isafjarðarsýsla og kaupstaður
með 14 félög, þá Eyjafjarðarsýsla og Akureyri með 11,
Gullbringu- og Kjósarsýsla og Hafnarfjörður með 9.
í öðrum lögsagnarumdæmum eru færri og í Rangárvalla-,
Skaftafells-, Suður-Múla-, þingeyjar-, Stranda- og Dala-
sýslum eru engin hlutafélög skrásett. Hlutafjárhæðin er
samtals í þessum 147 félögum kr. 15,807,051,76, þar af
eru ca. kr. 12,300,000,00 í félögum hér í Reykjavík. Hér
er aðeins talin sú hlutafjárupphæð, sem tilkynt er að
íélagið sé stofnað með, en ekki tekið tillit til síðari aukn-
ingar á hlutafénu, sem einstöku sinnum er tilkynt. Hvað
mikið hlutafé í raun og veru hafi verið innborgað verð-
ur ekki sagt um, og heldur ekki hve mikið er greitt í
peningum og hvað í öðrum eignum, né hvað sannvirði
þeirra eigna hafi verið.
Félögin eru mjög misstór eftir hlutafjárupphæðinni.
Uægst hlutafjárupphæð er kr. 1000,00 í einu félagi, hæst
kr. 1,500.000,00 líka í einu félagi. þess skal þó jafnframt