Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Qupperneq 19

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Qupperneq 19
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 13 félagaskipulagi, þá virðist það hvorki vera nauðsynlegt né heppilegt að undanskilja það hlutafélagalögunum, þó svo væri ákveðið, að arðinum væri skift með félögum eftir hlutdeild þeirra í veltu félagsins einvörðungu og starf- semi félagsins takmörkuð við þá eina. Öryggisreglna hlutafélagalaganna fyrir hluthafa og skuldheimtumenn virðist jafnmikil þörf hér sem í öðrum hlutafélögum. — Illutafélagalögin taka skv. 1. gr. ennfremur aðeins til þeirra félaga, sem eiga að afla ágóða til skiftingar með einhverjum hætti meðal félaga. þetta er tekið úr hluta- íelagalögunum dönsku. þessi takmörkun er nú að vísu ekki þýðingarmikil, því það mun vera fremur fátítt, að hlutafélög séu stofnuð, sem ekki eiga að gefa félögunum neinn arð. En komið getur það fyrir. Og þó að tilgangur félagsins sé þessi, þá sýnist geta verið jafnmikil þörf á öryggisreglum hér, einkum fyrir skuldheimtumenn félags- ins, sem þar er arði skal úthluta og því nokkuð efamál liversu réttmæt þessi undantekning er. í II. kafla laganna eru ákvæði um stofnun félags. Hingað til hafa um stofnun hlutafélaga gilt almennar reglur fjármálaréttarinns. Nú eru, eins og hvervetna mun vera í hlutafélagalögum, settar sérreglur um þessa félags- myndun. Skv. 3. gr. verður jafnan að gjöra skriflegan samning uni stofnun hlutafélags. petta gildir jafnt hvort sem stofnendurnir leggja alt hlutaféð fram eða eigi. Ákvæðin í 3. gr. um það, hvað standa skuli í stofnsamn- ingi, svara til ákvæðanna í 5. gr. dönsku hlutafélagalag- anna. pó er í íslensku lögunum bætt við tveimur þýð- ingarmiklum atriðum, sem ekki eni í dönsku lögunum. Annað er það, að geta skal í stofnsamningi hversu mikið fé hver stofnenda leggi til félagsins. Hitt er það, að þess skal getið, ef stofnendur áskilja sér stöðu hjá fé- laginu eða önnur fríðindi. Auk ákvæðanna um stofnsamninginn, sem eru með nokkuð líkum hætti í þeim hlutafélagalögum, sem eg þekki, eru víðast hvar önnur ákvæði, sem miða að því að koma í veg fyrir það, að misferli eigi sér stað við

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.