Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Síða 23
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 17
misferli af þeirra hálfu ekki hvað síst vera fólgin. Má
þar t. d. nefna H. G. B. § 202. Samkvæmt þeirri grein
bera stofnendurnir allir fyrir einn og einn fyrir alla
ábyrgð gagnvart félaginu á því, að skýrslur þær séu
fullkomnar og réttar, sem þeir gefa til verslunarskrár
um áskrift eða innborgun hlutafjár, um fríðindi sem ein-
stökum hluthöfum séu áskilin, um greiðslu hlutafjár í
öðru en peningum eða ef félagið á að taka að sér atvinnu
annars manns eða eignir, og um stofnkostnaðinn. Ef lof-
að hlutafé er talið of mikið, verða stofnendurnir að taka
það að sér, kostnað, sem ekki er talinn með í stofnkostn-
aði, verða þeir að greiða. Geti hluthal'i, sem skrifað hefir
sig fyrir hlut, ekki greitt hann, bera stofnendur þeir, er
tóku við áskrift hans og vissu um ógjaldfæri hans, ábyrgð
(solidariska) á greiðslunni. Svipuð ákvæði eru í 19. gr.
norsku laganna, 24. gr. sænsku laganna, 19. gr. í nefndar-
frumvarpinu danska 1901 og 20. gr. í frumvarpinu 1910.
í III. kafla laganna eru ákvæði um skrásetningu
hlutafélaga. Hlutafélag má eigi taka til starfa fyr en það
hefir verið skrásett, og skal tilkynna það til skrásetning-
ar á mánaðarfresti eftir að það var löglega stofnað. Skrá-
setningin má eigi fara frarn fyr en fengin eru loforð
um framlög lágmarks ákveðins hlutafjár, stjóm og end-
urskoðendur kosnir, samþyktir settar og fjórðungur lof-
aðs hlutafjár er greiddur, 10. gr. í 12. gr. eru ákvæði
um, hvað tilkynna skuli, og á tilkynningin skv. þeim að
vera töluvert ítarleg, á hún að greina flest þau atriði,
er máli skifta um hlutafélögin. Illutafélögin á að setja
á sérstaka skrá, hlutafélagaskrá. Ákvæðin um skrásetn-
ingu hlutafélaga virðast yfirleitt vera mjög heppileg og
geta sjálfsagt komið að miklu gagni. Af hlutafélaga-
skránni, sé hún rétt færð, eiga að fást upplýsingar um
flest það, er almenning varðar mestu að vita urn félagið.
En til þess að skráin komi að haldi, verður að hafa
strangar gætur á því, bæði að tilkynt séu öll þau félög,
er tilkynna skal, og að tilkynningarnar séu löglegar, þ. e.
að þær hafi að geyma alt, sem í tilkynningu á að standa,
2