Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Side 24
18 Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga.
og að neitað sé um skrásetningu, ef eitthvað brestur á
það eða skipulag félagsins með einhverjum hætti er
gagnstætt lögum. Og það er vitanlega ekki nægilegt, að
tilkynningin um stofnun félagsins sé gerð. það verður
einnig að tilkynna til skrárinnar þær breytingar, er síð-
ar verða á því, er tilkynt hefir verið til skrásetningar.
14. gr. hlutafélagalaganna mælir líka svo fyrir, að því
nær allar þessháttar breytingar skuli tilkynna til skrá-
setningar innan mánaðar frá því breytingin varð. 11. gr.
felur lögreglustjórunum að sjá um skrásetninguna. Hluta-
félagaskrárnar verða því jafnmargar og lögsagnarum-
dæmin, en ekki er gert ráð fyrir neinni allsherjarskrá fyr-
ir land alt. Eg hygg, að það sé hætt við að þetta fyrir-
komulag á skránum reynist ekki vel. Og eg byggi það á
því, hversu verslunarskrárnar nú eru haldnar. þær eru
lika hver fyrir sitt lögreglustjóraumdæmi. pað þarf ekki
lengi að leita í þeim til þess að ganga úr skugga um, að
þar úir og grúir af ólöglegum tilkynningum. Eg hefi at-
hugað þetta sérstaklega um hlutafélögin. Skv. 16. gr. 1.
42. 13. nóv. 1903, á að tilkynna firma til verslunarskrár
áður en atvinnureksturinn byrjar, og skv. 21. gr. á að
tilkynna breytingar, er síðar verða á því, er ritað hefir
verið í verslunarskrár. Ilvað frumtilkynninguna snertir,þá
skal hún skv. 19. gr., ef um hlutafélög er að ræða, greina
9 atriði, auk firmans. I tilkynningar um 52 af þeim 147
hlutafélögum, sem tilkynt hafa verið, vantar greinagjörð
um eitthvert af þessum atriðum, og í sumar þeirra um
fleiri en eitt. Með öðrum orðum, fullur þriðjungur af
ollum tilkynningunum er ólöglegur. Auk þess er það
aðeins í örfáum tilfellum sem tilkyntar hafa verið breyt-
ingar á því, sem tilkynt hafði verið í frumtilkynning-
unni, svo grunsamlega fáum, að óhætt mun að fullyrða
að þær tilkynningar hafi alment verið vanræktar. þetta
hvorttveggja bendir til þess, að lögreglustjóramir hafi
ekki lagt sérlega mikla rækt við þessar skrár, sumir
Jiverjir að minsta kosti, og verði eftirlitið með hlutafélaga-
tilkynningunum líkt þessu, þá verður ekki mikið á hluta-