Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Qupperneq 26
20 Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga.
ur, ef trygging er sett fyrir afganginum. pannig er
venjulega um vátryggingarfélög. Skv. 22. gr. yrði í þeim
íélögum ekki hægt að gefa út hlutabréf fyr en hag fé-
lagsins væri komið svo, að grípa hefir þurft til trygg-
inganna og innkalla alt hlutaféð, m. ö. o. ekki fyr en
félagið jafnaðarlega væri í þann veginn að fara á höf-
uðið. Til þess tíma yrðu hluthafarnir að láta sér nægja
bráðabirgðaskírteini sem heimildarbréf fyrir hlutdeild
sinni í félaginu. En það mundi auðvitað leiða til þess, að
með bráðabirgðaskírteini yrði farið alveg eins og hluta-
bréf, þau myndi ganga kaupum og sölum alveg eins og
hiutabréf. í sænsku lögunum er þetta ákvæði ekki eins
bagalegt vegna þess, að þau lög taka ekki til vátrygging-
arhlutafélaga. Um þau eru önnur lög, 1. 25. mars 1917.
Um önnur ákvæði í þessum kafla skal eg fyrst geta
þess, að ákvæðin í 26. gr. um lækkun hlutafjár eru
rokkuð breytt frá samsvarandi ákvæðum dönsku lag-
anna, og það til bóta. þannig getur skv. 26. gr. hlut-
hafafundur einn ákveðið: að minka hlutafé, en í Dan-
mörku er talið að leggja megi það atriði á vald stjórn-
arinnar í samþyktum félagsins, en það mundi ol't og
einatt ekki vera tryggilegt. í annan stað eru í 26. gr.
ákvæði um ógildingu hlutabréfa og bráðabirgðaskírteina,
sem inn hafa verið leyst, miklu ítarlegri og gleggri en
ákvæði dönsku laganna þar að lútandi.
pá vil eg enn minnast á ákvæði 28. gr., um það, með
hverjum hætti hlutafélag geti átt hlutabréf sjálfs sín
eða rétt yfir þeim. Að hlutafélag megi eiga hlutabréf
sjálfs sin er mjög varhugavert. pegar hlutafélag kaupir
hlutabréf sjálfs sín, þá lækkar það í raun réttri hluta-
féð að sama skapi. Endurgjaldið, sem það greiðir fyrir
hlutabi-éfið, er ekkert annað en endurgreiðsla á hluta-
fénu til hluthafanna. því meira sem félagið kaupir af
bréfum sjálfs sín, því minni verður fjárstofn þess, hluta-
féð. Heimild félaginu til handa til þess að eignast hluta-
bréf sín getur því leitt til mestu misferla. Hluthafarn-
ir geta látið félagið kaupa bréfin af sér og forðað sér við