Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Qupperneq 27
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 21
tapi með þeim hætti. En þegar svo skuldheimtumenn
l’élagsins eiga að fá fullnægt kröfum sínum, er hluta-
féð horfið og verðlaus pappír kominn í þess stað. Erlend-
is hefir heimild hlutafélaga til að kaupa bréf sín reynst
hættuleg að því leyti, að hún hefir freistað manna til
þess, er álit félagsins hefir verið að þverra, hlutabréfin
að lækka í verði og gjaldtraust félagsins því á þrotum,
að láta félagið sjálft kaupa bréfin til að halda verðinu
uppi og halda í gjaldtraustið. En þetta hefir auðvitað
orðið skammgóður vermir og endað með skelfingu. Af
þessum ástæðum er það víðast hvar algjörlega bannað
að félag eignist hlutabréf sjálfs sín, eða taki þau til
tryggingar, nema til ógildingar í sambandi við lækkun
hlutafjár og með vissum skilyrðum, aðallega skyldu til
að afhenda, þau fljótlega aftur, við fjárnám, sbr. n. 1.
§§ 28 og 29, H. G. B. § 226, s. 1. § 51, d. frv. I.
§ 34, II. § 44—46. Sama gildir um enskan rétt. Dönsku
hlutafélagalögin § 25 leyfa félaginu aftur á móti að eiga
sjálfs sín hlutabréf, en áskilur aðeins að þau séu talin
á sérstökum lið í ársreikningnum, og að tilkynt sé til
hlutafélagaskrár, ef félagið eignast meira en 5% af
ldutafénu. Ákvæði 28. gr. hlutafélagalaganna íslensku
eru með enn öðru móti. Félaginu er bannað að taka
hlutabréf eða bráðabirgðaskírteini sjálfs sín til trygg-
ingar eða lána út á þau. En hinsvegar er félaginu leyft
að eiga hlutabréf sjálfs sín, alt að 10% af hlutafénu, án
frekari skilyrða, og með leyfi atvinnumálaráðherra, ef
meira er. Og það skiftir eigi máli, hvernig félagið eignast
bréfin, hvort það tekur þau upp í skuld, kaupir þau eða
leysir þau til sín til að ógilda þau. Einu sinni á ári á að
tilkynna til skrásetningar eign félagsins í sjálfs sín bréf-
um og greina á hana á sérstökum lið á efnahagsreikn-
ingnum. Eg hygg, að hér séu félaginu gefnar altof frjáls-
ar hendur og það að þarflausu. Með þessu móti getur fé-
lagið með mjög hægu móti lækkað hlutaféð um ]/io
hluta og skuldheimtumennina getur munað um það. Og
ef atvinnumálaráðuneytið verður tillátssamt um leyfi til