Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Side 31
Tímarit lögíTæðinga og hagfræðinga.
25
laginu sjálfu áskilinn forkaupsréttur að hlutum. Sýnir
það, að sú trú, er sumir kaupsýslumenn hér hafa haft
á þvi, að láta félögin sjálf eignast hluti sína, er enn
við líði, en vitanlega er slíkt ákvæði nú aðeins löglegt
innan þeirra takmarka, sem 28. gr. hlfl. setur.
í Ugeskrift for Retsvæsen 29. apríl s. 1. ritar H. B.
Krencke! um hlutafélagalögin íslensku. Grein hans er
aðallega um þau ákvæði hlfl. íslensku, sem frábrugðin
eru hinum dönsku. Kennir þar sumstaðar nokkurs mis-
skilnings. þannig segir hann, að lágmark hlutafjár sé
10000 kr. skv. ísl. lögunum, sem ekki er rétt, því skv.
4. gr. eiga stofnendurnir að leggja fram hluti í félag-
inu fyrir að minsta kosti 2000 kr. a 11 s, en ekki h v e r.
Lágmark hlutafjárins verður því 2000 kr. Höf. telur, að
mnköllun til skuldheimtumanna, er minka á hlutafé, þurfi
aðeins að fara fram er lækka á hlutaféð um helming, og
fer hörðum orðum um það ákvæði, en skv. 20. gr. skal
jafnan gefa út innköllun, er hlutaféð er minkað um helm-
ing eða m i n n a. Sá það minkað um meira en helming,
fer um það sem félagsslit skv. 48. gr.
Ólafur Lárusson.