Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Síða 37
Tímarit lögfvæðinga og hagfræðinga. 31
1919 rak svo langt, að 246 bls. af A-deild, sem öll
nam 255 bls., kom út í e i n u lagi, með öll lög þess árs
í einni bendu. B-deildin kom það ár út í 4 heftum. Og
fyrst í 4. heftinu var getið 64 nýrra laga, og það hefti
var þó ekki prentað fyr en — 11. febrúar 19 2 0, 4Va
mánuði eftir útkomu fyrstu laganna, sem heftið getur
um frá árinu 1919.
Hér við bætist, að heftin koma eigi fyrir almenn-
ingssjónir fyr en nokkrum vikum og jafnvel mánuðum
eftir prentun þeirra; 4. hefti B-deildar 1919 var t. d.
eigi borið út fyr en 17. mars 1920.
Fyrstu lögin 1919 eru bráðabirgðarlög um innflutn-
ingsgjald af síldartunnum og efni í þær. Konungur und-
irskrifaði þau 6. mars, en það var eigi getið um þau í
B-deild fyr en 26. maí, og heftið, sem gat þeirra, var
tkki borið út fyr en í júlí. þau lög, og mörg fleiri það
ár, gengu í gildi með undirskrift konungs. Næstu lög,
um breyting á tolllögunum, voru undirskrifuð af konungi
12. ágúst, en ekki getið í B-deild fyr en 30. okt., og heftið
ekki borið út fyr en 11. desbr., en lögin tóku þó gildi
12. ágúst. — Lögin um forkaupsrétt á jörðum eru frá
28. nóv. 1919, en voru eigi birt í B-deild fyr en 11. febr.
1920. þau flytja mikilsverð nýmæli um kauprétt sveitar-
félags til jarðar, er losnar úr sjálfsábúð. Hefði þeirra
verið getið í B-deild, segjum 11. desbr. 1919, þá hefðu
þau gengið í gildi 5. mars 1920. En nú var þeirra ekki
getið fyr en 11. febr. 1920, og tóku því eigi gildi fyr
en 6. maí það ár, eða um 2 mánuðum eftir að þau
hefðu mátt taka gildi. Gæti hugsast, að öðru vísi hefði
íarið en skyldi um einhverja góðjörðina fyrir bragðið.
Sá kostur fylgir að vísu nýbreytninni, að hægara er
að halda tíðindunum saman með því móti. En hann er
°f dýru verði keyptur, enda mætti senda starfsmönnum
íúmennings tíðindin á lausum blöðum, eins og fyr, og
&íðan senda þeim þau heft. L. H. B.