Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Side 39

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Side 39
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 33 því, að útgefandi skyldi ekki endast til að gefa út safn það, sem höfundurinn hafði lokið við. Veldur eftir- sjá minni bæði það, að í því safni var öllum gildum — og að eins gildum — lögum ætlað sæti, og svo hitt, að eg veit engan einn núlifandi lagamanna jafnfæran próf. Ein- ari til að standa fyrir slíku verki. En ekki tjáir að sakast um orðna hluti. Heldur verð- ur að reyna að bæta úr brestunum. Og mætti gera það með ýmsu móti. í Svíþjóð eru aðallögin (Sveriges rikes- lag) gefin út árlega með nýjum viðaukum og úrfelling- um. Og væri það sennilega ákj ósanlegasta úrræðið. En meðan pappír og prentun er jafndýr og hér gerist enn, er ekki við því að búast, að slík nýjung yrði tekin upp hér. Og væri þá sennilega ekki líklegra bjargráð fyrir hendi, en að gefa sem fyrst út það, sem eftir er óprent- að af safni próf. Einars, með ítarlegri efnisskrá, og hraða jafnframt sem mest má verða „Lagaskrá" þeirri, sem lagadeildin hefir unnið að í nokkur ár. Vildi eg mega beina þessari áskonm til þeirra, er hlut eiga að máli, og jafnframt vekja athygli ríkisstjóm- arinnar á því, hvort ekki mundi mega hlaupa undir bagga með útgefanda að lagasafni próf. E. A., ef fjárþröng kynni að hafa tafið útgáfu síðara bindisins. L. H. B. 3

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.