Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Qupperneq 42

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Qupperneq 42
36 Tímarit logfræðinga og hagfræðinga. isvísindanna“. Meðal ríkisvísindanna telur hann ríkisfræð- ina eða ríkislýsinguna (statistik), er kenni, að hve miklu leyti tilgangi ríkisins sé náð á vissum tilteknum tíma. Segir hann, að réttast væri, ef það væri ekki svo stirt, að kalla þessa vísindagrein ríkishagsfræði. Telur hann upp þau efni, er hún hljóði um, en það er í stuttu máli um landið sjálft, mannfjöldann og atvinnuvegina, og ráð- stafanir stjórnarinnar, sem annaðhvort stuðla til þess eða tálma því, að velmegun og hagsæld ríkisins aukist. það er auðséð, að það er háskólastatistikin þýska, sem héi er fyrirmyndin. Nokkni síðar (1857) ritar Arnljótur Ólafsson um „Landshagsfræði Islands, efni hennar og niðurskipun“, í Skýrslur um landshagi á Islandi, sem Bókmentafélagið var þá nýlega farið að gefa út. Byrjar hann ritgerðina með þessari skilgreiningu: „Hagfræðin er skýring á hög- um lands og lýða, framsögð í tölum“. Hér er sú breyt- mg á orðin, að áhersla er lögð á töluframsetningu, en við myndun nafnsins á fræðigreininni kemur þó ekki sú breyting í ljós. Nafnið er þýðing á orðinu statistik, þó þannig, að gengið er út frá merkingunni ástand, en ekki ríki í orðinu „stato“. Islenska orðið hagur er hér tekið í merkingunni ástand, og hagfræði er hér því sama sem ástandsfræði. Enda þótt skilgreiningin takmarki umdæmi fræðigreinarinnar við hagi lands og lýða, þá liggur sú takmörkun ekki í nafninu, og það gæti þess vegna eins átt við hvers konar statistik, sem ekki íjallaði um hagi lands og lýða. Yfirleitt er orðið svo óákveðið, að það gæti átt við allskonar lýsingar á hverju sem er, en það er þó ekki svo mikill ókostur, því að auðvitað fær orðið við notkunina sína ákveðnu merkingu, og það er ekki við því að búast né heldur þörf á, að heiti sé fullkomin skil- greining. Orðið hagfræði er líka stutt og laggott, og þar sem það hefir ávalt verið notað um þessa fræðigrein, og í samræmi við það hafa verið mynduð önnur orð, sem eingöngu snerta hana, svo sem hagskýrslur og hagstofa,

x

Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga
https://timarit.is/publication/589

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.