Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Síða 46
40 Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga.
t. d. um guðfræði og goðafræði, málfræði og mælifræði,
hljóðfræði og hljómfræði, og verður ekki vart við, að
það valdi neinum vandræðum. En jafnvel þótt eitthvað
megi með réttu finna að orðinu talfræði, þá hygg eg,
að það sé miklu heppilegra sem heiti á statistik heldur en
orðið hagfræði.
porsteinn porsteinsson.
Norræn lögræðislagafrumvörp.
Eins og kunnugt er hefir nefnd noiTænna (danskra,
norskra og sænskra) fulltrúa setið á rökstólum síðan ár-
ið 1901 til að semja lagafrumvörp til sem líkastrar lög-
gjafar handa þjóðum þessum á sviði 1. borgararéttar.
Hefir hún samið ýms mikilvæg lagafrumvörp, og eru
sum þeirra orðin að lögum. Síðustu frumvörpin, sem
r.efndin hefir sent frá sér, eni frv. til laga um lögræði
(á dönsku: Udkast til Lov om Umyndighed og Værge-
maal), og kom það út í júlí í fyrra. Danska frv. er með
nokkrum breytingum, sem engar eru stórvægilegar nema
breytingarnar á 8. kapítula, orðið að lögum nr. 277, 30.
júní 1922. — Skal hér sagt frá aðalefni frv. þessara og
danska frv. lagt til grundvallar.
Frv. þetta er í 9 kapítulum með yfirskriftunum: 1.
kap. Om Umyndige, 2. kap. Om Værger, 3. kap. Om For-
ældremyndighed, 4. kap. Om Myndighedens Retsvirkning-
er, 5. kap. Om Værgens Beföjelser og Pligter, 6. kap. Om
Lavværgemaal, 7. kap. Om Værger beskikkede til særligt
Hverv, 8. kap. Om Umyndiges og Sindsyges Erstatnings-
ansvar og Sindsyges Retshandler, og 9. kap. Forskellige
Bestemmelser og Overgangsbestemmelser.
1. k a p í t u 1 i. Ólögráðir (umyndige, mindreaarige)
eru allir þeir, sem ekki hafa náð 21 árs aldri, svo og
þeir, sem sviftir hafa verið lögræði. Lögræðisleyfi má