Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Page 49
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 43
inn. Eru engin ákvæði sett um forréttindi ættingja til
fjárráða að öðru jöfnu, eins og í ísl. lögunum, að frá-
skildum reglunum um lögborna fjárráðamenn. Hafi for-
eldri ákveðið, hver skuli vera fján’áðamaður barns þess
eftir dauða sinn, ber að skipa hann, hafi foreldrið haft
foreldravald yfir barninu, enda komi skipunin ekki í bága
við hagsmuni barnsins.
Rétt hefir maður til að skorast undan fjárráða-
mannsstarfi, ef:
1. hann er fullra 60 ára að aldri.
2. hann getur ekki framkvæmt starfið án verulegra
erfiðleika vegna sjúkleika eða líkamsgalla.
3. fjárráðamannsstarfið myndi valda honum erfið-
leika við framkvæmd opinberrar stöðu eða starfs, sem
hann hefir á hendi.
4. hann hefir á hendi tvö fjárhöld fyrir önnur börn
en sín eigin.
5. hann vegna fjárhaldsins væri neyddur til að van-
rækja verulega eigin málefni.
Fjárráðamaður, sem þegar hefir verið skipaður, get-
ur æskt lausnar frá starfinu þegar hann kemst í þær
ástæður, sem nefndar eru í 1.—3. og 5. lið.
Fjárhaldi ber að svifta þann mann, sem misbrúkar
stöðu sína, verður gjaldþrota eða er ekki fær um að
standa í stöðu sinni.
Svenska frv. víkur í engu verulegu frá d. frv. að
öðru leyti en því, að þar geta fleiri fjárhaldsmenn í
sameiningu haft á hendi fjárhald svo sem á sér stað í
ýmsum rómönskum löggjöfum. Frh.
Lái us Jóhannesson.
Bókafregn.
F. K. Neubecker: Finnlands Eherechtsreform.
Leipzig und Berlin 1921.