Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1979, Blaðsíða 4

Dýraverndarinn - 01.05.1979, Blaðsíða 4
 Aldarminning • • Jóhann O. Oddsson „Dýraverndarinn" hejiir á sinni 65 ára löngu œvi átt því láni aðI fagna, að margir mcetir og duglegir menn hafa lagt honum lið og rétt fram hjálpandi hendur. Á engan verður hall- að þótt sagt sé, að einn þeirra allrabestu hafi verið Jóhann Ogm. Oddsson, sem dreif blaðið upp úr öldtidal og kom kaupendatöl- unni upp í rúm 4000 á kreppuárunum 1920- ’22. Er það öruggt, að þá kom Jóhann fótunum undir blaðið og hjálpaði því kornungu yfir erf- iðasta byrjunar-hjalla^i. — í afmcelisblaði dýra- verndunarsamtakanna 1964,segir ritstjóri Dýra- verndarans, sem þá var Guðm. G. Hagalín, um Jóhann: „Greinar ritstjórans voru einarðar, röggsam- legar og hugsun skýr og rökföst, en einhverjar raunsæjustu og harðvítugustu greinarnar komu frá afgreiðslumanni blaðsins, Jóhanni Ogmundi Oddssyni, auk þess sem hann reyndist mjög áhugasamur og virkur um afgreiðslu blaðsins. Strax í annað tölublað 1. árg. skrifar hann grein um félagið og segir, að þegar það hafi vaxið svo, að félagatalan sé orðin 2-300, geti það byggt hesthús og selt ferðamönnum hey og skýli handa hestum sínum við vægu verði, þegar það hafi fengið 3-400 félaga, sé það þess megn- ugt að koma sér upp húsi handa hundum ferða- manna, og þá er félagatalan sé orðin eitt til tvö þúsund, sé því kleift að reisa sjúkraskýli fyrir vanaða eða meidda hunda og hesta og önnur dýr, svo að þau geti notið þar hjúkrunar góðra manna. Það var ekki á Jóhanns færi að auka félagatöluna svo sem hann taldi nauðsynlegt, en honum tókst undrafljótt með sendibréfum og lögeggjunum í blaðinu að afla því kaupenda. Hann efndi til eins konar keppni. Eftir fyrsta árið voru kaupendur orðnir 1600, og þá skýrir Jóhann frá því, að Friðjón Sigurðsson verslun- armaður á ísafirði hafi útvegað 50 kaupendur. Hann segir síðan: „Hver vill keppa við hann? Nýir útsölumenn óskast." í seinasta blaðinu 1916 segir hann, að upplag Dýraverndarans verði hækkað í 3000. Það ár var samt blaðið 6 arkir í stað fjögurra, en verðið þó sama og áður. Þá getur hann þess, að Sigurður S. Skagfeld, bú- fræðingur í Brautarholti í Skagafirði, hafi þeg- ar útvegað blaðinu á annað hundrað kaupend- ur, og hann skorar á ungar stúlkurr að láta ekki piltana verða drýgri um öflun kaupenda. Og víst er um það, að Jóhann kom kaup- endatölunni upp í rúm 4000. Var starf Jóhanns blaðinu ómetanlegur styrkur, en því miður treystist hann ekki til að halda áfram störfum sínum í þágu þess nema átta fyrstu árin, sem það var gefið út, þar eð þá var hann orðinn önnum kafinn fyrir Stórstúku íslands, hafði meðal annars á hendi fyrir hana afgreiðslu og útbreiðslu Templars og barnablaðsins Æskunn- ar ... Við afgreiðslu blaðsins tók, þegar Jóhann lét af henni Þorleifur Gunnarsson, forstjóri Fé- lagsbókbandsins, sem var mikill dýravinur og reyndist reglusamur um útsendingu og inn- heimtu blaðsins, þótt ekki væri hann jafn- áhrifamikill eldhugi og Jóhann." Jóhann Ogmundur Oddsson var fæddur í Oddgeirshólum í Flóa 12. febrúar 1879 og and- aðist 25. október 1964. Foreldrar hans voru Sig- ríður Jónsdóttir og Oddur Ogmundsson bóndi. Kvæntur var Jóhann Sigríði Halldórsdóttur frá Stokkseyrarrseli. Hún andaðist árið 1947. G.H. DÝRAVERNDARINN <a^£) S^£) S^£> G^£) S^9S^£)S^%£) <5^9 S^%9S^£) S^£) 6^96^9 S^£)

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.