Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1979, Síða 10

Dýraverndarinn - 01.05.1979, Síða 10
Dýrin og við KATTAFÁR (Infectious feline entertitis) Kattafár er vírussjúkdómur er getur lagst á öll dýr innan katta- fjölskyldunnar (Felines). Hann er einn skæðasti og útbreiddasti sjúkdómur katta um allan heim. Til glöggvunar á því hvað þessi sjúkdómur er skæður ætla ég í stuttu máli að rifja upp sögu vír- usins. Oldum saman höfðu menn vitað að hinir ýmsu sjúkdómar höfðu ákveðnar orsakir en það var ekki fyrr en á 19. öld með tilkomu smásjárinnar að bakterían var greind. Menn vissu þó að bakterí- an var ekki orsök allra sjúkdóma og því hlaut að vera til önnur veira. Vírusinn var uppgötvaður í byrjun þessarar aldar en menn vissu lítið um hann þar til raf- eindasmásjáin komst á markaðinn. Vírusinn er aðeins brot af stærð bakteríunnar. Hann er ekki „lif- andi" veira. Hann er aðeins virk- ur og getur aðeins fjölgað sér inn- an lifandi fruma og fjölgar sér þá afar ört. Þar sem vírusinn er enn „ungt" fyrirbæri læknavís- indanna er ekki ennþá fundið upp lyf gegn honum. Þó hafa verið búin til bóluefni gegn ýmsum vír- ussjúkdómum og er það eina að- ferðin til að halda vírussjúkdóm- um niðri. Kattafár er vírussjúkdómur og afar bráðdrepandi. Hann kem- ur upp sem faraldur rrfeð vissu millibili og fáir óbólusettir kettir komast þá undan honum. Hann leggur helst mjög unga og á hinn bóginn gamla ketti að velli. Hraustir kettir á besta aldri virð- ast oft lifa sjúkdóminn af. Kettir sem hafa fengið kattafár og lifað það af eru ónæmir frá sjúkdómn- um upp frá því. Kattafár getur lýst sér á ýms- an hátt. Uppköst og niðurgangur með blóði eru aðaleinkennin. Ælan er oftast gulleit. Sjúkdóm- urinn er stundum svo bráðdrep- andi að eigandi getur fundið kött- inn sinn dauðan að morgni án þess að orðið hafi vart við að hann væri veikur kvöldið áður. Oftast eru kettirnir fárveikir í 2-6 daga. Á því tímabili deyr kötturinn eða byrjar að ná sér hægt. Meðan kött- urinn er veikur getur hann lítið sem ekkert nærst og ælir öllu sem reynt er að koma niður í hann. Líkaminn þornar því fljótt upp og lífslíkur minnka. Fúkkalyf duga ekkert gegn vírussjúkdómum en eru þó notuð til varnar öðrum kvillum er orsakast af bakteríum þar sem veikburða köttur er afar móttækilegur fyrir þeim. Þrúgusykurvatn og hreint soð- ið vatn er helsta næringin sem gefa skal þar til kötturinn hættir að æla. Mín reynsla er sú að allt annað, t. d. fisksoð og kjötsoð geri illt verra. Stafar það eflaust af saltinu í soðinu, en það virðist auka uppköstin. Þegar kötturinn er á batavegi skal gefa honum létta en næringar- ríka fæðu. Máltíðirnar fyrstu dag- ana skulu vera litlar ca. 20-30 gr. 4-5 sinnum á dag á meðan melt- ingarstarfsemin er að komast í lag. Ágætt er að gefa fisk, rækjur og hænsnakjöt. Annað kjöt og katta- matur úr dós er ekki æskilegur. Gefa má barnamat og einnig 1-2 dropa af ungbarnavítamíni dag- lega. Ég vil hvetja kattaeigendur til að láta bólusetja ketti sína frá 2-3 mánaða aldri og viðhalda bólusetn- ingunni á 2-3 ára fresti. Nýir trúnaðarmenn BORGARHREPPUR, Mýrasýslu: Þorkell Fjelsted, Ferjtikoti. SKARÐSHREPPUR, Dalasýslu: Valdís Þórðardóttir, Búðardal. HÓLAHREPPUR, Skagafjarðarsýslu: Björn Ragnarsson, Nautabúi, Hjaltadal. BARÐASTANDARHREPPUR, V.-Barðastrandarsýslu: Gunnar Már, Gunnarsson, Aðalstrceti, Patreksfirði. REYKHÓLAHREPPUR, A.-Barððastrandarsýslu: Finnur Kristjánsson, Skerðingsstöðum, Reykhólasv. ÞVERÁRHREPPUR, V.-Húnavatnssýslu: Sigurður Halldórsson, Efri-Þverá. 10 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.