Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1979, Side 11

Dýraverndarinn - 01.05.1979, Side 11
Þrastahreiður í bíl Það var á mótum vors og sumars árið 1976, að við sem störfuðum við bú Búnaðarsambands Eyja- fjarðar að Rangárvöllum, í hlíð- inni ofan við Akureyrarbæ, veitt- um því athygli að þrastahjón voru á sífelldu flögri við dyrnar á svína- búinu. Þarna stóð tankbíll að stað- aldri, utan þess að einu sinni hvern da& var sótt á honum undan- tenna niður í mjólkursamlagið, handa svínunum. Það starf ann- aðist Eyþór Jóhannsson. Af tilviljun sá hann að á lít- >11 i sillu í undirvagninum, höfðu þrestirnir gert sér hreiður og voru í því fimm egg. Nú voru góð ráð dýr. Bílinn þurfti að nota. Hinsvegar þótti °kkur illa farið, ef það yrði til þess, að eyðileggja heimili þess- ata yndislegu fugla sem sýnilega treystu okkur og trúðu til alls góðs. Það varð fangaráð Eyþórs, að hann breiddi ullarlagð yfir eggin, þegar hann þurfti að hreyfa bílinn, er> fjarlægði hann að ferð lokinni. Þetta gekk að óskum og engu s'ður eftir að ungarnir fimm skriðu ur eggjunum. Ekki var hægt að sjá að þrestirnir ærðust, þegar Eyþór °k úr hlaði, en fljótir voru þeir að vitja síns heima þegar bíllinn var kominn á sinn stað aftur. í*að var með ólíkindum hve Utlgarnir uxu, enda voru foreldr- arntr iðnir að bera að þeim og hundu ekki vinnutímann við klukku. Þar kom að svo þröngt gerðist í hreiðrinu, að við óttuð- dýraverndarinn umst að ungarnir færu að hrynja úr því einhvers staðar niður á Þingvallastræti. Svo fór þó ekki. Einn morgun, þegar ég kom snemma á vettvang, sást enginn þröstur við bílinn og hreiðrið var tómt. Þegar ég fór að svipast um eftir fuglunum, sem gátu varla verið komnir langt, varð ég þeirra var í spítnabraksbing þarna skammt frá. Þetta var hinn ákjós- anlegasti áningarstaður, á meðan ungarnir voru að læra að fljúga. Þess var heldur ekki langt að bíða, að fjölskyldan hvarf með öllu. Sennilega hefur hún flogið til skógar. Þrestir verpa mikið á Akureyri og eiga það til að fljúga inn um opna glugga og búa sér hreiður í gluggakistunni, á bak við tjöldin. Hér er vel búið að þessum sum- argestum og eiga þeir ekki aðra óvini en kettina. Þeir eru margir í bænum og ekki of vel séðir af fuglavinum. Fyrir skömmu var ég á ferð i Noregi og ók með Harðangursfirð- inum, þar sem eplatrén rétta arma sína inn á veginn og freista manna að seilast eftir ávexti um opinn bílgluggann. Þarna varð ég var við ungan mann sem var að skjóta þresti með haglabyssu. Hafði hann nokkra fugla bundna í kippu við belti sér. Var mér sagt að slíkir veiðimenn væru vel séðir af á- vaxtabændum, því þrestir geta gerst aðgangsharðir í berjareitum þeirra. Þrátt fyrir útskýringu þessa, bauð mér í meira lagi við aðför- um hins unga og glæsilega manns, sem óð um skógarhlíðina með blóðugar hendur. Þótt ekki sé allt í sómanum, hvað snertir fugladráp á íslandi, veit ég þess engin dæmi enn, að menn fari með byssu að skógar- þröstum. Jón Bjarnason, frá Garðsvík. Þakkir til gefenda Ingibjörg Arnarsdóttir, Hrefna Arnarsdóttir og Sandra Magnús- dóttir til dýraspítala kr. 5.400 (hlutavelta). Anna Regína Björnsdóttir og Hulda Guðrún Valdimarsdóttir til dýraspítala kr. 2.100 (hlutavelta). Ásdís Þórðardóttir kr. 5.000. Margrét Hálfdanardóttir kr. 5.000. Pála Sörensen (áheit) 25.000. Ondúlathjónin Mona Lísa og Prins kr. 5.000. Pjakkur Pellason kr. 5.000. Með þökkum móttekið. Stjórn S.D.Í. II

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.