Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1979, Síða 25

Dýraverndarinn - 01.05.1979, Síða 25
Minning um Mark Watson Látinn er í London hinn kunni íslandsvinur og dýravinur, Mark Watson, 12 ára a8 aldri. Hann dó i svefni að heimili sínu, aðfara- nótt 12. mars s.l. Um áratugaskeið hefur Mark Watson verið þjóðkunnur mað- ur hérlendis fyrir einstakan áhuga sinn á íslandi og íslenskum mál- efnum. Kom hann hingað oft til landsins til þess að ferðast og vinna hér að ýmsum þeim mál- efnum, sem hann hafði áhuga á að leggja hönd að. Voru það eink- um líknar- og mannúðar- og menningarmál. Watson kom fyrst til landsins á árinu 1936. Það var í kjölfar þeirrar heimsóknar, að liugmyndin um verndun bæjar- húsanna að Glaumbæ í Skagafirði kviknaði. Lagði hann þá fram all- verulegt fé til þess að málinu yrði hrundið í framkvæmd. - Eru það byggðarsafnshúsin í Glaumbæ. Síðan komu önnur mál, sem hann studdi með ýmsum hætti, t. d. gjafir til Háskólabókasafnsins, til Minjasafns Reykjavíkurborgar og Listasafns íslands. Áhugi hans á dýravernd var og mikill og ein- lægur. Mun Mark Watson hafa átt einna drýgstan þátt í því að vekja menn til umhugsunar um að við- halda hreinræktun íslenska fjár- hundsins. Gaf hann út bók um ís- lenska hundinn á árinu 1956. Heitir hún „The Iceland Dog »74-1956", þar sem rakin er saga þessa einstaka hundskyns, teknar dýraverndarinn upp tilvitnanir um það í bók- menntum og birtur er fjöldi mynda, gamalla og nýrra. Er bók þessi, sem gefin var út á kostnað Watsons, en ágóða af sölu gaf hann Dýraverndunarfélagi Reykja- víkur, nú orðin næsta fágæt óg eftirsótt af bókasöfnurum. Hand- rit bókarinnar eru tvö, geysivönd- uð, og er annað þeirra í bókasafni Watson, en hitt í vörslu vinar hans í Reykjavík. í safni Watsons er á annað þúsund bindi um ís- land á samtals 15 erlendum tungu- málum, en við þann flokk bóka takmarkaði Mark Watson söfnun sína. Watson bjó um tíma í Kali- forníu í Bandaríkjunum. Þangað vestur flutti hann skötuhjúin Bósa úr Skagafirði og Bröndu úr Jök- uldal á Austurlandi. - hafa þau líklega farið í lengsta og virðu- legasta ferðalag allra íslenskra hunda fyrr og síðar. Þau ferðuðust nefnilega loftleiðis héðan til Lund- úna, og voru vistuð þar á hunda- hóteli um skeið, en síðan tóku þau sér far með fínustu stórflug- vél yfir þvert Atlantshaf, og síð- an yfir þvera Ameríku og léttu ekki fyrr en þau komu til San- Francisco. Þaðan var þeim ekið rakleitt á búgarðinn utan við borgina, og þeim fengin vegleg vistarvera með ýmsum nýtísku þægindum, sem aldrei voru til siðs fyrir austan og norðan. Og þegar tímar liðu fram átti Branda marga hvolpa, sem báru glögg sér- kenni íslenskra hunda. Nokkrum árum síðar fluttist Watson aftur heim til Bretlands og bjó fyrst á búgarði í Devons- hire, en svo síðar í London. Mark Watson samdi einnig einu íslensku bókina sem komið hefur út um meðferð hunda. Heitir sú bók: Hundurinn minn. - Hið síð- asta, sem Mark Watson gaf til íslands var stórgjöf, hvorki meira né minna en tilbúinn Dýra- spítali ásamt tækjum. Sá dýra- spítali stendur nú inni í Víðidal og hefur tekið til starfa sem hjálp- arstöð dýra. — Spítalinn ber nafn gefandans. í þakklætis- og viður- kenningarskyni fyrir stuðning og störf að dýraverndunarmálum Framh. á hls. 26. 25

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.