Dýraverndarinn - 01.01.1983, Síða 4
5 ARA
Flóamarkaður SDÍ verður 5 ára núna snemma í sumar. Það er stórmerkur árangur og
áfangi hjá starfsemi sem rekin er af sjálfboðaliðum - alltaf þeim sömu - ár eftir ár!
Við skorum á alla vini og velunnara dýraverndar að styrkja dýraverndunarstarfið og gefa
muni á Flóamarkaðinn - ,,harða“ eða ,,mjúka“ - allt er vel þegið.
Sérstaklega óskum við eftir karlmannafatnaði, búsáhöldum, húsgögnum, skrautmunum,
bókum, leikföngum og plötum.
Kíkið í skápa og geymslur, kjallara og háaloft - þar er áreiðanlega ýmislegt sem þið notið
ekki lengur en kæmu öðrum í góðar þarfir.
VIÐ TREYSTUM Á YKKUR!
Flóamarkaður SDÍ
er að Hafnarstræti 17, kjallara.
Opið mánudaga til fimmtudaga,
frá klukkan 14-18.
2