Dýraverndarinn - 01.01.1983, Page 11
6 -l
Heildarfjöldi breskra tilrauna, sem feng-
ið var leyfi fyrir. Skyggáu hlutarnirtákna
það hlutfall tilraunanna, þar sem svefn-
lyf voru notuð.
3. Hiti. Sársauki framkallaður
með hitageislun og með að setja
dýrin á heitar pönnur. Þegar mýs
eru settar á heitar plötur, eru við-
brögð þeirra sögð vera, að þær
„dansi og hoppi á framfótunum."
4. Eiturverkanir. Sé kaolíni dælt
í loppur dýra, myndast í þeim sér-
staklega sársaukafull igerð og bólg-
ur. Turpentín framkallar ígerð, sé
því dælt í framloppur katta. Elekt-
róður, sem settar eru i heila katt-
anna, sýna, að rafvirkni eykst og
strychnine er síðan enn látið auka
á rafboðin frá hinum veika bletti.
Inndæling sveppa orsakar
einnig sársaukafullar bólgumynd-
anir. Sé þrýst á bólgnu svæðin, er
það sagt leiða til að dýrin „hljóði,
berjist um og biti.“ Bradykinin-
inngjafir orsaka mikinn brunasárs-
auka og hefur efni þetta verið mikið
notað við rannsóknir á sársauka.
5. Einnig má framkalla sársauka
og ótta með að örva sérstakar heila-
stöðvar.
Enda þótt mæla megi gegn
notkun manna (sjálfboðaliða) við
rannsóknir, eru þær röksemdir
veigaminni en þær, sem mæla gegn
notkun dýra. Meginmunurinn er,
að maður getur látið í ljós vilja til
að taka þátt í slíkum rannsóknum,
en það geta dýrin ekki. Einnig er
hægt að draga úr hræðslu og upp-
námi mannlegra sjálfboðaliða með
þvi að þeir geta gert sér grein fyrir,
hvað verið er að gera við þá, metið
hinn vísindalega tilgang og vænta
jafnvel vissrar umbunar. Dýr geta
ekki skilið, hvers vegna menn í
hvitum sloppum eru að pynda þau
og uppnámið, sem öll tilraunadýr
komast í, eykur nokkuð örugglega
á þjáningarnar. Sjálfboðaliðar
hafa verið notaðir i vandlega undir-
búnum og framkvæmdum tilraun-
um og niðurstöðurnar hafa haft
miklu meira gildi en niðurstöður
tilrauna með dýr. Eða hvernig er
hægt að rannsaka svo óhlutlægt
atriði sem sársauka án þess að sá,
sem tilraunin er framkvæmd á, geti
lýst reynslu sinni?
V Lífið á rannsóknarstofunni.
Ymis lyf eru notuð sem svæfilyf
án þess að nokkuð sé vitað um,
hvort þau svæfi dýrin i raun og
veru. Urethane og ketamine eru
dæmi um efni, sem svæfilyf við
dýratilraunir. Hugsanlegt er að
efni þessi lami dýrið aðeins, ánþess
það missi tilfinningu, en svæfi það
ekki.
Eina leiðin til að komast að því,
hvort þessi efni eru í raun og veru
svefnlyf er að prófa þau á mönnum,
en slíkar tilraunir eru sjaldan fram-
kvæmdar.
Um aflífun tilraunadýra.
Dýr með köldu hlóði (misheitu)
eru drepin með að mölva höfuð
þeirra. Mýs eru drepnar með að
slá höfði þeirra utan í borðbrún.
Hundar og kettir eru skotnir, drepn-
ir með rafstuði eða þeim gefið inn
eitur. Einnig drepin með eiturgasi.
VI Tilraunir utan Bretlands.
Menn halda oft, að breskir rann-
sóknarmenn framkvæmi ekki eins
hrottafengnar tilraunir og starfs-
bræður þeirra víða erlendis. Trúlega
er þarna fyrst og fremst um það að
ræða, að bretum er það í blóð borið
að lýsa hlutunum á „fínni“ hátt —
miðað við t.d. Bandaríkjamenn,
sem yfirleitt eru ekkert að skafa
utan af hlutunum í lýsingum sínum.
Sálfræðingur í Conneticut hefur
bent á, að apar, sem ákveðinn hluti
heilans hefur verið fjarlægður úr,
eigi það stundum til að éta saur.
Við þessar athuganir notaði hann
Hlutfallslegur fjöldi þeirra tilrauna, sem
framkvœmdar hafa verið innan lœkna-
vís indanna.
ókynþroska rhesus-apa. Hann fjar-
lægði úr^ þeim viðkomandi heila-
hluta til að athuga hinar breyttu
matarvenjur þeirra.
Visindamaður í Kaliforníuhá-
skóla reyrði niður apa, skar af þeim
skottið, dró úr þeim vígtennurnar
og setti elektróður langt inn í heila
þeirra. Tækjum til þvag- og blóð-
sýnatöku var komið fyrir inni í
þeim. Eftir að hafa fengið atferlis-
fræðilega þjálfun, var öpum þessum
skotið út í geiminn.
Rannsóknarmaður við John
Hopkins læknaskólann í Baltimore
lagið stund á athuganir á skyndi-
legum dauða. Þetta gerði hann með
að setja rottur niður í vatnstank og
athuga hve lengi þær væru að
drukkna. Ýmist drukknuðu rott-
urnar strax (gáfust upp) eða syntu
um — i allt að sextíu klst., áður en
þær drukknuðu. Hannkomsteinnig
að þeirri niðurstöðu, að þær drukkn-
uðu fljótar, væri ,,skeggið“ skorið
af þeim.
9