Dýraverndarinn - 01.01.1983, Blaðsíða 24
Endalok sögnfuglsins: Tilbúinn í pottinn!
Afríku er ástandið ekki gott þó það
sé ekki nærri eins slæmt og í fyrr-
nefndu löndunum.
Samkvæmt könnun sem fram-
kvæmd var á vegum Efnahags-
bandalagsins eru fuglaveiðimenn
í kringum Miðjarðarhafíð um tíu
milljónir! Til samanburðar má
nefna að friðsamir fuglaskoðaðar
á þessum slóðum eru um tíu þúsund.
Að meðaltali eru að minnsta kosti
15% farfuglanna sem fara til svæð-
anna í kringum Miðjarðarhafið sem
lenda í klóm veiðimannanna.
js tók saman úr
Dyrevennen 6/82
ÁVARP
Sambands dýraverndunarfélags íslands
í tilefni EVRÓPUDAGSINS 1983 sem helgaður er náttúruvernd.
í tilefni Evrópudagsins 1983 minnir Samband dýraverndun-
arfélaga á rétt þeirra fáu tegunda villtra spendýra sem lifa á
og við ísland.
Þó þessi dýr hafi sama rétt til landsins og mennirnir, fá
þau ekki að lifa í friði. Flest þeirra eru ofsótt og fé lagt til
höfuðs þeim. Lítið fé er aftur á móti lagt í rannsóknir á lifn-
aðarháttum þeirra en ýmsar bábiljur og jafnvel ofstæki
ræður gerðum manna.
Ein þessara dýrategunda er refurinn sem nú er friðaður á
öllum Norðurlöndum nema íslandi þar sem hann er ofsóttur
og ranglega úthrópaður sem hættulegur skaðvaldur.
Nú stöndum við frammi fyrir því að við höfum ofnýtt fiski-
stofna; þá er selurinn gerður að blóraböggli og gífurlegum
fjármunum varið til þess að hvetja landsmenn til þess að
ráðast gegn honum.
Á þesum tíma hraða og firringar er okkur nauðsyn að
læra að meta ósnortið náttúru- og dýralíf landsins. Og okkur
ber skylda til þess að vernda það með öllum ráðum.
Samband dýraverndunarfélaga íslands.
Þúfutittlingurinn friðaður á Ítalíu.
31. jan. 1983.
Ég hygg að frétt um friðun þúfu-
tittlings sem farfugls á Ítalíu gleðji
lesendur Dýraverndarans eins og hún
gladdi mig og því skrifa ég blaðinu
eftirfarandi:
Von var það allra, sem stóðu að
alþjóðasamþykktinni um fuglavernd
og friðun í París 1951 að þar með sæi
fyrir endann á smáfugladrápi á suður-
löndum en svo varð eigi. Átakanlegust
voru mótmæli almennings í Belgíu
þegar þar skyldu aflagðar veiðar
farfugla í net ogálímstengur. Baráttan
fyrir vernd og friðun farfugla hefur
verið haldið stöðugt áfram og hún
reist á nefndri samþykkt.
Á átjánda þingi alþjóðráðs um
vernd fugla, sem fram fór í Cambridge
á Englandi í s.l. ágúst, tilkynnti fulltrúi
Italíu að löggjöf hafi þar í landi verið
samþykkt og tók gildi 6. júní 1982 að
lögbannað sé að deyða, veiða og selja
13 tegundir farfugla eða farandfar-
fugla. Lagði fulltrúinn fram skrá yfir
þessar tegundir. Meðal þeirra er
Þúfutittlingurinn.
Vonandi verður framhald á slíkum
friðarákvæðum meðal þjóða suður-
landa.
Þorsteinn Einarsson.
22