Dýraverndarinn - 01.01.1983, Page 30
Til þess að fínna DDT-laus mat-
væli virðist svo sem menn þurfí að
fara til fjarlægra og afskekktra
landsvæða, sem enn hafa ekki eign-
azt hlutdeild í menningunni. Slík
svæði eru enn til nyrzt á strönd
Alaska, enda þótt sjá megi þar
merki þess, að skugginn nálgist.
Þegar vísindamenn rannsökuðu
matvæli eskimóanna þar, reyndust
þau laus við skordýraeitur. Nýr
fískur og þurrkaður, fita eða kjöt af
bjórum, hvölum, hreindýrum,
bjarndýrum og rostungum; trönu-
ber, brómber og villtur rabbari - í
öllu þessu fannst ekkert skordýra-
eitur. Aðeins ein undantekning
fannst - tvær snæuglur frá Point
Hope reyndust hafa í sér DDT, sem
þær hafa ef til vill fengið í sig á
ferðum sínu suður á bóginn.
Nokkrir eskimóar voru rann-
sakaðir og fannst vottur af DDT
(0 til 1,9 milljónustu hlutar) í fitu
þeirra. Ástæðan var augljós. Þeir
sem rannsakaðir voru höfðu farið
til læknisaðgerðar á spítalanum í
Anchorage. Þangað var menningin
komin, og í matnum þar fannst eins
mikið DDT og í öðrum amerískum
borgum. Fyrir þessi stuttu kyni sín
af menningunni fengu þeir að laun-
um ögn af eitri með sér í nesti.
Það er nú orðið næstum algild
regla, að skordýraeitri sé úðað eða
sáldrað yfir akra og annað ræktað
land, og óumflýjanleg afleiðing
þess er sú, að hver einasta máltíð,
sem vér neytum, er menguð klór-
samböndum kolvatnsefna. Ef
bóndinn fylgir samvizkusamlega
leiðbeiningunum á umbúðunum
um þessi efni, verður ekki meira af
þeim í framleiðslu hans en leyfilegt
er samkvæmt reglum Matvæla- og
lyfjastofnunarinnar. Þó að vér
látum svo heita að með þessum
reglum sé tryggilega um hnútana
búið, er sú staðreynd alkunn, að
bændur nota oft miklu meira af
þessum efnum en fyrirmælin segja
til um, nota þau þegar komið er of
nærri uppskerutíma, nota tvö eða
fleiri þegar eitt væri nóg og eru auk
þess haldnir þeim mannlega breysk-
leika að vanrækja að lesa leiðbein-
ingarnar.
í fórum Matvæla- og lyfjastofn-
unarinnar eru skýrslu um uggvæn-
lega mörg brot á settum reglum.
Nokkur dæmi nægja til að sýna
hirðuleysið í þessum efnum: Garð-
yrkjumaður, sem ræktaði salat,
úðaði það með átta tegundum skor-
sýraeiturs í stað einnar skönnu áður
en hann setti það á markað, annar
notaði fímm sinnum meira af para-
thion en reglurnar mæltu fyrir um
á sellerí sitt, endrin - eitraðast af
öllum klórsamböndum kolvatns-
efna - hefur verið notað á salat,
enda, þótt ekki megi selja salat, sem
endrin fínnst á, og spínat hefur
verið úðað með DDT viku áður en
það var tekið upp.
Dæmi eru einnig um eiturmeng-
un matvæla vegna slysni eða að-
gæsluleysis. Stórir farmar af kaffí-
baunum í strigapokum hafa meng-
azt við það að vera í lest með farmi
af skordýraeitri. Pökkuð matvæli í
vöruskemmum verða tíðum fyrir
úða af DDT, lindani eða öðrum
skordýralyfjum, sem smogið geta í
gegnum umbúðirnar og mengað
innihald. Því lengur sem matvælin
eru í skemmunum, því meiri hætta
er á að þau mengist eitri.
Sé spurt: „En vernda yfirvöldin
oss ekki gegn öðru eins og þessu,“
er svarið: „Aðeins að takmörkuðu
leyti.“ Það er tvennt, sem hindrar
alvarlega viðleitni Matvæla- og
lyfjastofnunarinnar til að vernda
neytendur fyrir eyðingarlyfjum.
Hið fyrra er, að vald hennar nær
aðeins til matvæla, sem flutt eru
milli ríkja; matvæli, sem ræktuð eru
og seld innan eins og sama ríkis,
eru utan áhrifasviðs hennar, hversu
alvarleg brot sem um er að ræða.
Hið síðara er mannfæð í starfsliði
stofnunarinnar - það eru innan við
600 manns, sem eiga að sinna þessu
mikla eftirlitsstarfí. Einn af starfs-
mönnum stofnunarinnar hefur lát-
ið svo ummælt, að eins og nú sé
ástatt sé ekki hægt að rannsaka
nema örlítið bort - langt innan við
1% - af þeim landbúnaðarafurðum,
sem fluttar eru milli ríkja, og er það
alltof lítið til þess að nokkuð sé á
því að byggja. Enn verra er ástand-
ið að því er snertir matvæli, sem
framleidd eru og seld innan eins og
sama ríkis, því að í flestum ríkjum
er lagaákvæðum sorglega áfátt í
þessum efnum.
Það kerfí, sem Matvæla- og lyfja-
stofnunin notar til þess að ákveða
Fuglatalning á Akureyri
Almennur fuglatalningardagur var að þessu sinni 26. desember 1982. Veður
var ágætt, logn allan daginn, frost 2 stig, léttskýjað og skyggni ágætt. Pollurinn
var ófrosinn og íslaus, svo og fjörur. Færi um bæinn var ágætt, háir snjóruðn-
ingar meðfram götum, því mikið snjóaði í desember.
Þeir sem töldu fugla voru hinir sömu og undanfarin ár: Árni Björn Árnason,
Gunnlaugur Pétursson, Jón Sigurjónsson og Þorsteinn Þorsteinsson.
Athugunarsvæðið var ströndin frá flugvelli og út í Skjaldarvík ásamt görð-
um bæjarins.
Þessar fuglategundir sáust:
Auðnutittlingur 1, gráþrestir 8, skógarþrestir 7, svartþrestir 3, glóbrystingur 1,
snjótittlingar 1624, bjartmáfar 93, siifurmáfar 124, svartbakar 319 hvítmáfar
164, hettumáfar 224, stormmáfur 1, sendlingar 2a, hrafnár 71, gulendur 10,
stokkendur 280, toppendur 11, rauðhöfðaönd 1, hávellur 72 teistur 18 æða-
fugl 711, ógreindir máfar 610. Alls voru fuglategundir 21.
Þótt einungis sæjust 7 skógarþrestir á fuglatalningardaginn mundu a.m.k.
20 skógarþrestir vera í bænum um áramótin 1982-1983. Auk þeirra fugla sem
sáust í fuglatalningunni var eftirtaldra fugla vart á árinu 1982 á Akureyri.
Gráþrestir, sem verptu tvisvar og komu upp ungum í bæði skiptin. Sáust
ungar í byrjun júlí og aftur í ágústmánuði. Um miðjan nóvember kom til Akur-
eyrar mikið af gráþröstum og fór þeim síðan fækkandi. Gráþröstur verpti á
Akureyri 1980. Stari sást hér í október. Tveir hettusöngvarar sáust í byrjun
nóvember. í byrjun nóvember sást einnig lítill söngvari, laufsöngvari eða grá-
söngvari en þeir eru fremur torgreindir hvor frá öðrum.
28