Dýraverndarinn - 01.12.1965, Side 15
DAGUR DÝJRANNA
Hugsið ykkur annað eins og það, að einn drott-
insdag væri messað í hverri einustu kirkju á íslandi
og ekki kæmi aðeins fólk í kirkju, heldur stæði í
kórdyrum í'allegur, vel kembdur og fagurlega skreytt-
ur hestur! Og svo prédikaði presturinn um skyld-
urnar við smælingjana og þá fyrst og fremst dýrin,
því að dagurinn, — segjum 13. sunnudagur eftir
þrenningarhátíð, — liefði verið helgaður málstað
dýranna, en guðspjall þess dags er dæmisagan um
liinn miskunnsama Samverja. Þegar slík messa er
sungin í enskri kirkju, stendur þar á niiðju gólfi
fallega skreyttur vagnhestur, og þetta hneykslar eng-
an. Erkibiskupinn af Kantaraborg lét sem sé það
boð út ganga, að 13. sunnudagur eftir þrenningar-
hátíð skyldi helgaður dýrunum í öllum enskum
kirkjum, — og ef hann hefur ekki skipað svo fyrir,
þá hefur liann að minnsta kosti samþykkt þá til-
lögu einhvers dýravinar, að við messurnar skyldu
dýrin eiga sér fulltrúa.
Það eru raunar kirkjur fleiri landa en Englands,
sem hafa tekið upp þann sið að helga dýrunum
sérstakan sunnudag ár livert, en Dýraverndaranum
er ekki kunnugt um, að nein kirkja önnur en sú
enska hafi viðstaddan fulltrúa frá dýrunum, en
hvað sem því líður, væri ekki fjarri lagi, að íslenzka
kirkjan léti sér sæma að bjóða klerkum sínum að
vígja málstað dýranna einn sunnudag á ári — og
ekki virðist vera óeðlilegt að til þess væri valinn
einmitt sá sunnudagur kirkjuársins, sem á sér að
guðspjalli dæmisöguna um hinn miskunnsama Sam-
verja.
Sá dagur ætti og að vera dagur dýranna víðar en
í kirkjunum. Þá ætti að vera sérstök dagskrá við
þau bundin í ríkisútvarpinu og fé vera safnað um
land allt til ágóða fyrir þá starfsemi, sem miðar að
bættri meðferð á dýrum. Þessu máli hefur áður
verið hreyft hér í blaðinu, en fæst, sem gott er og
þarft, reynist vinna fljótlega almennt fylgi, og ís-
lenzka kirkjan sýnist ekki vera þar fljótari til en
almenningur.
Dýrin eru þó enn sem komið er það mikilvæg
máttarstoð atvinnulífsins á íslandi, að vel mætti
kirkjan telja sér samboðið að vinna málstað þeirra
gagn, enda liafa einstakir jDrestar minnzt dýranna
af sjálfsdáðum stöku sinnum úr ræðustóli, og eina
þá hörðustu lníð, sem gerð hefur verið að miskunn-
arleysinu gegn dýrunum hér á landi, gerði íslenzkur
klerkur, séra Ólafur Ólafsson, þá er hann flutti
fyrirlestur sinn um meðferðina á þarfasta þjónin-
um, fyrirlestur, sem síðan var prentaður og komst
á fjcilda heimila um land allt.
Nýlega er látinn einn göfugasti og mikilhæfasti
borizt inn í líkama þeirra með loftinu, en eins oft
eða oftar eftir krókaleiðum. Hænsni hafa til dæmis
etið korn, sem hefur verið mengað eiturefnum,
þessi efni síðan reynzt í eggjum liænsnanna og með
þeim borizt inn í líkama þeirra manna, sem eggin
hafa etið. Þannig mætti halda áfram að tína til
dæmi. Það liefur valdið miklum og skaðvænum
erfiðleikum í baráttunni gegn óhóflegri og óskyn-
samlegri notkun eiturefna gegn meindýrum, að
vellauðugar efnaverksmiðjur liafa tekið upp stór-
framleiðslu á fjölda af slíkum efnum, beinlínis í
gróðaskyni. Þessi fyrirtæki auglýsa þau hóflaust og
freista að kæfa raddir þeirra manna sem hrópa:
Varið ykkur! Rachel Carson eignaðist sannarlega
marga og volduga óvildarmenn, og áreiðanlega hafa
þeir verið ófáir, sern hrósað hafa happi, þegar þeim
barst dánarfregn hennar. Mammon er voldugur —
og hefur aldrei haft liltæk jafnmörg og virk ráð
og nú til framdráttar málstað sínum og vilja.
Það er augljóst, bæði af þessari bók og af for-
málunum tveimur, að hér hefur okkur íslendingum
ekki síður en öðrum, borið mikinn vanda að höndum.
Hver stendur hér á verði? Ég fæ ekki betur séð, en
jafnt heilbrigðisyfirvöldunum sem forystumönnum
íslenzks landbúnaðar og íslenzkrar landgræðslu og
skógræktar beri að taka þessi mál lil mjög ræki-
legrar athugunar, já, rannsóknar, og síðan sé allur
allmenningur varaður við hættunum, bæði í heild
og í einstökum atriðum. Sannarlega hafa hér verið
skipaðar nefndir, þegar síður skyldi. Enn er ef til
vill ekki mikill skaði skeður hér á landi, og svo gildir
þá að byrgja brunninn, áður en barnið er dottið í
hann.
Guðmundur Gislason Hagalin.
DÝRAVERNDARINN
81