Búnaðarrit - 01.01.1918, Page 58
50
BÚNAÐARRIT
Um þá getgátu höfundarins, að efnahlutföllin í útheyinu kunni
að hafa verið óheppileg, dylst mér ekki, að einmitt þar muni
vera rétta lausnin, að svo miklu leyti sem því má treysta, að
hvorki þurfi að gera ráð fyrir ónákvæmni við tilraunirnar eða
öðru, er raski gildi þeirra.
í mínum augum fer því niðurstaða tilraunanna ekki í bága
við fóðureiningar P. Z. og raska ekki gildi útreikninga hans eða
heimildarmanna hans i þvi efni. En búpeningsræktin hér á landi
byggist á því, að gera sem mest verðmæti úr heyinu og beitinni,
jafnt fjörubeitinni sem grasbeitinni. Það, som því skiftir máli
fyrir bændur er, að gota farið nærri um hlutföll meltanlegra
efna heysins annarsvegar, eftir því hvert heyið er og hvernig það
er verkað, og hinsvegar beitarinnar til landsins og fjörunnar, þar
sem til hennar næst; og þvi næst að meta það liverjar fóðurbætis-
tegundir komi til álita að kaupa og bezt séu til þess fallnar að
bæta heimafóðrið eða auka það með þeim næringarefnum, sem of-
Htið er af í hlutfalli við þau efnin, sem meira er af en svo að skepn-
urnar geti notfært BÓr þau, ef þær fá ekki annað en heimafóður.
Eins og Jón Gautur bendir á, reyndist sildarmjölið langbezti
fóðurbætirinn, maísinn þar næst, en rúgmjölið sízt.
í sambandi við efnagreining þessara fóðurtegunda samkvæmt
efnarannsóknum sýnir niðurstaða tilraunanna því að kolvetnin i
heyinu voru meiri en svo, að skepnurnar gætu notfært sér þau
til fulls, ef eingöngu var gefið hey, og að það kom þá fyrst að
fyllri notum, er bæði eggjahvítan og feitin var aukin í fóðrinu.
En þegar þannig stendur á, má ekki miða gæði fóðurbætisins,
sem keyptur er, við það hvernig hinar einstöku fóðurbætisteg-
undir eru metnar til fóðureininga og hverjar tegundir séu ódýr-
astar eftir þeim útreikningum, heldur það eitt hverjar tegundir
hafi mesta eggjahvítu og feiti að geyma, og hentastar eru til
þess að auka þau efni fóðursins í heild sinni á ódýrastan hátt.
Er eg því sammála Jóni Gaut um það, að fóðureiningaútreikn-
ingar séu í þessu sambandi og fyrir þessar sakir villandi fyrir al-
þýðu manna, og fjærri því að vera til þess fallnir „að skapa ljósa,
alþýðlega fræðslu til leiðbeiningar við rétta hagnýting fóðurtegund-
anna“. Og að minni ætlan er umbóta í fóðrun búpeningsins, eins
og Jón Gautur vekur máls á og aðalatriðið er fyrir honum, einmitt
þar að leita, að efnahlutföllin í fóðrinu, eins og það er, séu oft og
tiðum óheppileg, og sé þvi oftar nauðsynlegt en vér gerum oss grein
fyrir, að hafa annað fóður með heimafóðrinu, til þess að fóðurgildi
þess njóti Bin sem bezt. E. Br.