Búnaðarrit - 01.12.1916, Síða 32
286
BÚNAÐARRIT
koti í Mýrasýslu, Ingunnarstöðum í Kjós, Skógarkoti í
Þingvailasveit o. s. frv.
Sýningar á stórgripum voru ekki aðrar þetta ár
en héraðssýning fyrir alla Húnavatnssýslu á hrossum.
Yar hún á Sveinsstöðum 19. júní. Var hún allvel sótt?
og hrossin flest sæmilega útlítandi. í dómnefnd, auk
min, voru þeir Ásgeir Jónsson i Gottorp og Magnús
Jónsson á Sveinsstöðum.
Hrútasýningar voru haldnar í Húnavatnssýslu,
Bæjarhreppi í Strandasýslu, og svo innan búnaðarsam-
bands Dala og Snæfellsness, og sambands Borgarfjarðar,
og ennfremur í Kjósarsýslu. Hefir þessara sýninga verið
þegar minst í Búnaðarritinu (2. hefti þ. á.).
Kynðótaí'élögin. Þeim fjölgar heldur. Nautgripa-
félögin, sem nutu styrks fyrir starfsárið frá 1. nóv. 1913.
til 31. okt. 1914, voru 22, með 2594 kúm. Auk þess
stofnuð á árinu 1914, 3 ný félög með 326 kúm, og
verða þá féiögin 25 alls með 2920 kúm samtals. Styrk-
urinn til félaganna nam alls kr. 4442,50.
Á þessu ári, 1915, hafa verið stofnuð fjögur ný
félög, þar af tvö í Húnavatnssýslu, í Langadal og Svína-
vatnshreppi.
Hrossarœktarfélögin eru 8 alls.
SauðfjárJcynbótábúin eru sjö, þau sömu og árið 1914.
— Sauðfjárræktarfélag er nýstofnað í Mela- og Leirásveit
í Borgarfirði. Er það þriðja fjárræktarfélagið á landinu.
Eftirlitskenslan fór íram eins og að undanförnu,
1. nóv. til 15. des. Kenslunnar nutu að þessu sinni 12
menn. Þeir voru:
1. Agúst Sveinsson frá Ásum í Árnessýslu,
2. Eiður Guðmundsson frá Óslandi í Skagafirði,
3. Guðiaugur Einarsson frá Moldartungu í Rangárv.s.,
4. Guðlaugur Jóhannesson frá Klettstíu í Mýrasýslu,