Sunna - 01.01.1933, Síða 31
S U N N A
127
II. „Neistar“ heilir blað Hafnarfjarðar-barnaskóla. Er það
fjölritað og kom fyrsta tölublaðið út í des. sl. Blaðið er ritað
af börnum. — Ritgerðir um Hafnarfjörð og barnaskólann þar
eru í fyrsta blaðinu, nokkrar laglegar vísur eftir börn o. fl.
Blaðið er snoturt.
III. „Árvakur“ er gefinn út af 8, bekk A Austurbæjarskóla
Reykjavíkur. Tvö blöð hafa komið út í vetur, hið fyrra í
nóvember, síðara jólablað. Er þetta II. árg. »Árvakurs«.
Fyrsta árg. gaf út 7. bekkur D í fyrravetur, en það er sami
drengjabekkurinn, sem nú er 8. bekkur A og Aðalsteinn Sig-
mundsson hefir kennt báða veturna.
»Árvakur« er 16 bls. hvert hefti, með sögum, ljóðum og
ritgerðum eftir alia drengina. Heilsíðumynd, er drengirnir hafa
teiknað, er á fremstu bls. hvers heftis og auk þess nokkrar
aðrar myndir. — »Árvakur« er mjög myndarlegt skólablað
og hið skemmtilegasta aflestrar. Eg get ekki stillt mig um
að birta hér niðurlag greinar, er heitir »Krían«. Sjónarvottur,
Halldór Grímsson, er þar að lýsa dauða kríu-unga:
». . . Litlu seinna reis unginn á fætur og baðaði út vængj-
unum, eins og hann vildi lyfta sér á flug. Datt mér í hug,
að hann væri í andlátinu, og honum fynndist hann vera að
fljúga í gargandi kríuhóp með móður sinni og nyti gleðinnar
eftir þeirra mælikvarða. Ðrátt kyrrðist hann aftur, stakk höfð-
inu undir væng sér og var þegar látinn. Nokkru síðar tókum
við fuglinn og bárum hann upp á fagra hæð, skammt frá
bænum, grófum þar holu og lögðum hann þar ofan í, ásamt
öðrum fugli, sem ég fann látinn í tröðunum. Við sungum
ekkert, en sumarblærinn hvíslaði útfararsönginn og sólin
blessaði yfir gröf þessara saklausu viria — — —«.
Munu margir öfunda hinn unga höfund af þessari látlausu
og fögru lýsingu.
Drengirnir selja blað sitt til ágóða fyrir ferðasjóð sinn.
Hefir 8. bekkur A í hyggju að komast til Færeyja að námi
loknu í vor. Ágóði af nóvember-blaðinu var 100 krónur.
Nokkuð af þeim peningum er fyrir auglýsingar, sem blaðið
hefir flutt. — »Árvakur« er fjölritaður.