Melkorka - 01.04.1950, Side 11
Inga L. Lárusdóttir ritstjóri
23. sept. 1880 - 7. nóv. 1949
Eftir Ingibjörgu Benediktsdóttur
Ég veit ekki, þegar við þekktumst hér fyrst,
hvort þú rakst á nokkuð hjá mér,
en það var þinn hiklausi hugur
og hlýjan, sem dró mig að þér.
Þ. E.
Þessi orð liafa oft flögrað að mér, er ég
hef minnzt Ingu Lárusdóttur liðinnar. Við
eigum lienni svo undurmargt að þakka,
þessari Ijúfu, yfirlætislausu konu, sem er
okkur öllum ógleymanleg, sem þekktum
hana betur.
Það var gróandi í þjóðlífinu á öðrum tug
þessarar aldar. Eg man, að ég kom þá til
Reykjavíkur, fróðleiksfús, spyrjandi, —
framar öllu öðru þyrst. Ég vildi kynnast
ýmsu þessu nýja, sem var að skapast og vaxa.
Alþýðleg fræðsla og margháttaður félags-
skapur, ungmennafélögin, kvenréttinda-
hreyfingin og félagsskapur kvenna í örum
vexti. Ég reyndi að skyggnast um eftir þessu
öllu af fremstu getu. Ég sá og kynntist
ýmsu góðu fólki og ágætum konum. Og víða
hvar, meðal þeirra, sem störfuðu bezt og
straumhvörfunum ollu, hitti ég einmitt
Ingu Lárusdóttur í fremstu röðtun, ekki
gustmikla, með ópum og háreysti, heldur
milda, ástúðlega, leiðbeinandi, öllum til
lialds og trausts. Það var gott að verða henni
samferða. Hún fældi ekki frá sér með stæri-
læti og lærdómshroka, Iieldur laðaði og
leiddi með hógværð og ljúfmennsku. At-
hyglisgáfa hennar var slík, að hún skynjaði
öðrum betur hvar það var, sem „lítið lautar-
blóm langaði til að gróa“. Og þá var að rétta
fram hjúkrandi hönd og sjá um veitt vaxtar-
skilyrði, birtu og yl.
Ingá Lára Lárusdóttir.
í þessum anda stofnaði Inga Lárusdóttir
mánaðarblaðið ,,19. júní“ árið 1917. Nafnið
var valið eftir kvenréttindadeginum, hátíð-
isdegi kvenna. Kvenréttindakona var In'ga
af lífi og sál. Stofnun Landsspítala, er konur
höfðu valið sér sent metnaðarmál til minn-
ingar urn réttindi sín, varð henni hjartans
mál. I stjórn Landsspítalasjóðsnefndarinn-
ar vann hún ómetanlegt starf árum saman.
Með blaði sínu leitaðist hún við að vinna
MELKORKA
9