Melkorka - 01.05.1955, Side 6
Hafið þið riðið til Landmannalauga?
— Hafið þér staðið um hásumarnótt á fjöll-
unum við Öskjuvatn og séð sólina rísa yfir
auðnina? Þar er landið nakið eins og á fyrsta
degi sköpunarinnar, þar sést hvergi skóf á
steini, hvergi fugl né fluga, þar ríkir hin al-
gera þögn og litskrúð fjallanna er eins og í
ævintýranna heim, vatnið smaragðsgrænt og
ljósgul líparítaska, kolsvart apalhnaun og
tindrandi hvítur snjór þekur dalinn.
— Hafið þér riðið
norður sandana á há-
sléttunni norðan við
Vatnajökul um bjarta
sumarnótt þegar sólin
er að baki Herðubreið
og myndar dýrlegan
geislabaug yfir fjallið?
— Hafið þér staðið
á Eyjabökkum kyrrlátt
sumarkvöld og horft
á Snæfell gnæfa við
himin? Eða um sólar-
upprás og séð óhemju-
víðáttu Vatnajökuls
baðaða í morgunroð-
anum?
— Hafið þér tjaldað
við Lindána í Herðu-
breiðarlindum á
björtu sumarkvöldi?
— einum indælasta
tjaldstað sem hægt er
að hugsa sér, svo að
segja við rætur þess
fjalls sem flestir telja
formfegursta fjall á
þessu landi?
— Hafið þér riðið
fet fyrir fet klukku-
tímum saman um
það óliemju hraun-
haf er við nefnum
Ódáðahraun, fundið
live óumræðilega lít-
il við verðum í
faðmi þessa stærsta hrauns jarðarinnar?
— Hafið þér legið í blómskrýddri brekku
við Arnarfell hið mikla, þar sem fróðir rnenn
telja mest val villtra blóma á landi hér?
— Hafið þér komið til Veiðivatna? Þar er
landslag með þeim hætti að við gætum vel
liugsað okkur að við værum komin til tungls-
ins. Þar eru hin undradjúpu grænu augu,
Hraunvötnin og Pyttur, þessi fögru smávötn
38
MELKORKA