Melkorka - 01.05.1955, Qupperneq 8

Melkorka - 01.05.1955, Qupperneq 8
Heimsókn gyðjunnar Eftir Jakobínu Sigurðardóttur Þú stendur í kjallarastiganum miðjum og starir í augu mín hljóð. Víst ber mér að játa, ég bar til þin hug og brotin mín lagði í sjóð. Þér virtist þau leir og það virtist mér líka, en vittu að nú er ég írjáls og vandkvæði þín mega vera þeim vængstóru fjötur um háls. Ég skemmtí mér við það, að skammta þér formið skoplega margþvælt og snjáð í hálfþvegnum stiga. Á stónni er soðning af starfsmönnum hungruðum þráð. Nú skólpið úr fötunni í flýti! Á borðið svo fleygi ég diskunum hröð. Fyrst vandkvæði dagsins, svo vandamál þitt. Það virðist mér náttúrleg röð. En meðan þá hungruðu soðningin seður sezt ég við hlið þér í ró. Já, skrautið þitt sumt fær mér ofbirtu í augu, að öðru er huganum fró. En ljúf er sú angan af litklæðum þínum, af Ijómandi sniðum er nóg. Svo komung og fríð, þótt með kynslóðum árdags þú kannaðir helli og skóg. Hvað býr í þeim deilum um búning þinn, gyðja? Ef bros þitt er fagnandi og hlýtt þá met ég að líku hvort langsjal þú berð eða loðkápusnið þitt er nýtt. Mig langar að faðma þíg funheita og nakta og fínna að mannshjörtu slá í veröld, sem rís gegn vetnissprengjum í vöku og draumi og þrá. Þér ber ekki hægindið hlutlaust, því himinninn ætlaði þér að vernda það ljós, sem í veröld því ræður að vaggan af gröfinni ber. Því voldugri myrkranna máttur, því bjartari og mennskari guðslogi þinn. Ef finnur þú búning, sem hentar því hlutverki er hag þínum borgið um sinn. Og hvað svo um Ijóðið mitt litla? Það logar á eldgömlum kveik, sem mæðurnar brugðu með blóðrisa höndum við blikið í hlóðanna reyk. í brenni þær lögðu mér þrautir og þjáning og þar eru eldfímust tár, í ljósið þær fléttuðu lífstrúna bjarta við leyndustu vonir og þrár. Það skiptir mig litlu, þótt ljóðið mitt gleymist og lítið það dragi í bú. En dýrt er það líf, sem úr dauðans greipum var dregið með skóbót og trú. Og hafi það vakið þá vitneskju bami, sem vermist af íslenzkri sól, er goldin að einhverju önn þeirrar móður, sem óðinn og lífið mér fól. Ég deili ekki um hlut, en í horninu mínu ég hnoða mitt vængsmáa ljóð. Það rís eða hnígur með hjartslætti dagsins og hitað af mæðranna glóð. Víst horfirðu á mig með ásökun, gyðja, en uppþvottur bíður mín nú. Ég ber til þín hug, þótt ég svaraði synjun, er samfylgdar leitaðir þú. Svo takist þinn vandi, hjá veraldarlýðum að vernda þinn heilaga eld. Mín íslendingsþraut er að önnin og skyldan sé aldrei í gangverði felld, að vonin um sólskin sé eilífðar arfleifð þótt andviðrin mæði um stund, að grös fái að spretta, að börn fái að brosa með blómum á íslenzkri grund. 40 MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.