Melkorka - 01.05.1955, Page 15
Jenny Lind
------------------------------------------
Á V A R P
gegn
undirbúningi kjarnorkustyrjaldar
Ýmsar ríkisstjórnir undirbúa nú kjarn-
orkustyrjöld.
Þær leitast við að sannfæra almenning
um, að hún sé óhjákvæmileg.
Beiting kjarnorkuvopna mundi leiða
af sér allsherjar eyðingu í styrjöld.
Vér lýsum yfir því, að hver sú ríkis-
stjórn, sem byrjar kjarnorkustríð, hlýtur
að fyrirgera trausti þjóðar sinnar og kalla
yiir sig fordæmingu allra annarra þjóða.
Vér munum nú og framvegis standa í
gegn þeim, sem undirbúa kjarnorkustríð.
Vér krefjumst Jress, að birgðir kjarn-
orkuvopna í öllum löndum verði eyði-
lagðar og framleiðsla þeirra nú þegar
stöðvuð.
Að þessu ávarpi Heinisfriðarráðsins, sem samþykkt
var í Vínarborg 19. janúar 1955, er nú safnað undir-
skriftum um allan heim.
A fundi sem Samtök íslenzkra friðarsinna héldu í
Austurbæjarbíói í apríl var samþykkt ályktun þar
sem skorað var á alla íslendinga hvar i flokki sem
þeir standa að undirrita ávarpið og lýsa með þvi yfir
friðarvilja sínum frammi fyrir öllum heimi.
V__________________________________________)
valdsen kom til mín, klappaði á öxlina á mér
og sagði: „Nú fáum við að heyra ævintýri."
Hann hafði mikla ánægju af að láta mig segja
sögu. Einnig þegar hann var við vinnu sína.
Þá gat hann hlustað aftur og aftur á ævintýr-
ið um „Ljóta andarungann“.“
En í þeim stóra hópi vina og velunnara
sem H. C. Andersen telur upp og minnist
rneð þakklæti virðist þó ein kona hafa staðið
hjarta hans næst og helgar hann henni sér-
stakan kafla í bók sinni. Þessi kona var hin
víðfræga, sænska söngkona Jenny Lind eða
„sænski næturgalinn" eins og hún var stund-
um kölluð. Konan sem tónskáldið Mendel-
solin sagði um: „Slík kona fæðist aðeins á
margra alda fresti.“
Þau kynntust fyrst í Kaupmannahöfn, þar
sem söngkonan var á hljómleikaferð, og við
fyrstu kynni var hún fálát og hlédræg, og
skáldinu fannst hún ósköp blátt áfram og
venjuleg manneskja, en nokkru seinna bar
fundum þeirra aftur saman og urðu þau
kynni til þess að með Jjeim tókst vinátta sem
aldrei bar skugga á. „Jenny Lind er sá vinur
minn,“ segir skáldið H. C. Andersen, „sem
göfugust áhrif hefur haft á list mína, hún
örvaði mig til andlegs þroska og til að leita
Jæss göfuga í listinni og skilja það hlutverk
sem guð hafði ætlað mér sem skáldi."
„Á leiksviði var hún Iiin stórbrotna lista-
kona, sem átti engan sinn líka, heima hjá sér
feimin, ung stúlka, barnsleg og góð . . .“ Og
enn segir hann: „Ekkert getur skyggt á glæsi-
leik listakonunnar Jenny Lind á leiksviði —
nema hún sjálf heima hjá sér. Gáfur liennar
og barnslegt hjartalag höfðu máttugt aðdrátt-
arafl. Hana dreymdi um rólegt lítið lieimili,
þó elskaði hún list sína ofar öllu og var reiðu-
búin að fylgja Jjeirri köllun.“
í einni sigursöngför sinni í Kaupmanna-
höfn hélt Jenny I.ind mikla kveðjuveizlu
fyrir vini sína. Þar komst hinn frægi ballett-
meistari Bournenville svo að orði, að nú
Framli. á 50. bls.
MELKORKA
47