Melkorka - 01.03.1961, Qupperneq 10
VERA INBER
Eftir Elenu Túvinu
Sovéska skáldkonan Vera Inber er ekki einungis
fragt nafn í öllum Sovétríkjunum Jieldur á hún aðdá-
endur víða um heim. Elena Túvina Bergmann skrifaði
eftirfarandi grein um skáldkonuna fyrir Melkorku.
Greinin átti að koma í desemberheftinu en varð að In'ða
vegna rúmleysis. Kveðja skáldkonunnar til lesenda
blaðsins birtum við í íslenzkri þýðingu.
Ég kynntist Veru Inber fyrst fyrir um það
bil tuttugu árum. Mér var gefin kvæðabók
með myndum. Þetta voru mjög hlægileg
kvæði: um hana fertugfætlumömmu sem
gat ómögulega reiknað það út hve margar
skóhlífar börnin hennar þrjátíu og þrjjú
þyrftu í skólanum; um strákinn Bob sem
var svo freknóttur, að jafnvel hestarnir
hlógu að honum . . .
í bókinni var líka mynd af frænkunni
sem kvæðin hafði skrifað: bráðung kona,
góðleg hugsandi augu, ljóst hár og hressi-
lega uppbrett nef. Ég fann þá þegar að ég
gat borið til hennar fyllsta traust.
Vera Inber er einhver hin vinsælasta af
sovézkum skáldkonum. Það sem einkum
hrífur okkur í kvæðum hennar og sögum er
einlægni, sönn tilfinning og þó fyrst og
fremst gamansemi, fínleg gamansemi, sem
bjargar henni íullkomlega frá tilfinninga-
semi, en það verður því miður ekki sagt um
flestar aðrar konur úr rithöfundastétt okk-
ar. Má vera það sé Odessu að Jrakka, að
Veru Inber tekst að sjá hlutina í broslegu
Ijósi, borginni þar sem hún fæddist 10. júlí
1890. En Odessubúar eru með rétti álitnir
allra manna kátastir, gamansamastir og
lausastir við kveifarskap.
Móðir skáldkonunnar kenndi rússnesku
í kvennaskóla; hún var kona ströng og
einkadóttir hennar hafði beyg af henni.
Hinsvegar var Vera í góðu vinfengi við föð-
Ég er að visu fœdd i suðlrcgu héraði — A strönd hitis
heita Svartahafs, en mér þykir innilega vicnt um Norðr-
ið.
Ég held að ísland sé dásamlegt latid; já, auðvitað
hlýtur svo að vera.
Ég er hrifin af hinni einstceðu náttúru landsins, sem
ég þekki af kvikmyndum og málverkum. Ég hef hrifizt
af bókmenntum þess, harðneskjulegum og bliðlegum i
senn.
Sovézk skáldkona frá Moskvu sendir hjartanlegar
kveðjur til lesenda íslenzka kvennablaðsins Melkorha.
Þrýsti hönd ykkar.
14. nóv. 1960
VERA INBER
ur sinn; hann veitti forstöðu útgáfufyrir-
tækinu Mathesis sem gaf út stærðfræðirit,
en var maður glaðlyndur og góðviljaður.
Vera Inber hóf ljóðagerð snemma og átti
þó nokkur vers á samvizkunni áður en hún
gengi í menntaskóla. Að stúdentsprófi
loknu dvaldi hún fjögur ár í Sviss og París.
Hún hélt áfram að skrifa ljóð eins og stúlk-
10
MELKORKA