Melkorka - 01.03.1961, Síða 16
HANNYRÐIR
E£tir Grethe Benediklsson
ÓDYRAR SMÁBARNAPEISUR
Stærð: 1 (2) 3 ára; efni: 100 gr a£ S0nderborg Baby-
garn Sesam (50 gr hnyklar í plastpokum; í 2 ára stærð
voru notuð um 85 gr), prjónar 2i/í> í stuðlaprjón, 3 ann-
ars; rennilás 15 sm.
Munstur (lykkjufjöldi deilanlegur með 8): 1. umf.: 2
sl, ’ 4 br, 4 sl, endurtekið og endið á 4 br, 2 sl. 2. umf:
1 br ’ 2 sl, 2 br. Endurtakið frá ’ og endið á 2 sl, 1 br.
3. umf: 2 br, ' 4 sl, 4 br. Endurtakið frá ’ og endið á
4 sl, 2 br. 4 umf: br. 5. umf: sl. 6. umf: br.
Úrtökur fyrir raglanermar: á réttunni í upphafi um-
ferðar er ein lykkja tekin óprjónuð fram af prjóninum,
næsta lykkja prjónuð og hinni óprjónuðu steypt yfir,
en i lok umferðar eru 2 lykkjur prjónaðar saman slétt-
ar. Á úthverfunni á að bregða tvær lykkjur saman í
upphafi umferðar, er í lok umferðar á þann hátt að
stungið er í aðra lykkju á undan hinni fyrri.
Bakið: Fitjið upp 80 (88) 88 lykkjur, prjónið 4 sm
stuðlaprjón, en aukið í 4 lykkjum á seinustu umferð.
Nú er prjónað munstur nema yztu 2 lykkjur báðum
megin, sem eru alltaf prjónaðar sléttar. Aukið í einni
lykkju báðum megin þriðja hvern sm 2 (0) 2 sinnum
innan við kantlykkjurnar. Við 15 (17) 19 sm er byrjað á
úrtökum fyrir raglanermar. Takið úr á hverri umf. unz
64 (72) 88 lykkjur eru eftir, því næst aðeins á réttunni,
þangað til 28 (30) 32 lykkjur eru á prjóninum. Fellið
af.
Framstykkið er fyrst um sinn alveg eins og bakið.
Gætið þess að úrtökur byrja á sama munsturprjóni og
á bakinu. Þegar 44 (46) 48 lykkjur eru eftir eru 20 (22)
24 lykkjur í miðjunni felldar af fyrir hálsmál. Prjónið
vinstra stykkið fyrst. Takið úr 1 lykkju hálsmegin í
hverri umferð 6 sinnum; haldið áfram að taka úr á
hliðinni þangað til 2 lykkjur eru eftir, fellið af. Prjónið
hægra stykkið á sama hátt, en öfugt.
Hægri ermi: fitjið upp 46 (48) 50 lykkjur og prjónið
6 sm stuðlaprjón, en aukið í 6 (4) 10 lykkjum í siðustu
umferð. Nú er prjónað munstur nema á 2 yztu lykkjun-
um, sem eru alltaf prjónaðar sléttar. Aukið í 1 lykkju
báðum megin innan við kantlykkjurnar á áttundu
hverri umferð, unz 60 (64) 68 lykkjur eru á prjóninum.
Er ermin mælist 20 (22) 24 sm er byrjað að taka úr
16
MELKORKA