Valsblaðið - 01.05.1997, Side 7

Valsblaðið - 01.05.1997, Side 7
Jón Pétur, Stebbi Gunn, Óli Ben og fleiri "Mulningsvélarmenn" fagna sigri með stæl. félagsskapinn og tel að upphaflega tilganginum með stofnun Mulnings- vélarinnar hafi verið náð. Ekki sakar að menn eiga peninga í sjóði. Hluti arðsins er notaður til árlegra ferða- laga. Jafnframt gera fjárráðin tækifæri til að hlaupa undir bagga ef eitthvað fer úrskeiðis hjá félögunum eða öðrum, sem þarf að hjálpa tíma- bundið. Ungir Valsmenn og konur! Er ekki umhugsunarvert að fylgja fordæmi félaganna í Mulningsvélinni þegar keppnisferlinum lýkur? Með Valskveðju Undirritaður var beðinn að gera stutt- lega grein fyrir fyrirbæri, sem gengur undir nafninu Mulningsvélin. A sjö- unda og áttunda áratug þessarar aldar átti Valur mjög gott handknat- tleikslið, sem kannski lagði grunninn að þeirri sigurgöngu, sem hefur staðið nær óslitið síðan. Onnur félög hafa að sjálfsögðu þvælst aðeins fyrir okkur Valsmönnum tímabundið undanfarna áratugi en sjaldan svo að við kæmum ekki aftur á toppinn. Nóg af grobbinu! Vörn þessa gamla liðs fékk nafnið Stebbi Gunn hampar einum af mörg- um bikurum sem "Mulningsvélin" vann. Mulningsvélin hjá fjölmiðlum, væntan- lega vegna þess hve hún var vel mön- nuð og sterk. Það lá því beint við þegar gömlu félagarnir stofnuðu með sér félagsskap í apríl 1985 að kalla hann Mulningsvélina. Tilgangur fél- agsins var fyrst og fremst sá að tryggja það, að félagarnir héldu hópinn þótt keppnisferlinum væri lokið. Æ síðan hafa félagarnir 16 lagt mánaðarlega í sjóð og hist reglulega, aðallega til að viðhalda vináttunni, sem nú spannar 3 áratugi hjá flestum. Þegar handboltanum sleppti smituðust allir félagarnir af golfi. Nú er golfið það sem tengir alla sterkum böndum. Við leikum golf einu sinni í viku allt sumarið og er það liður í golfmóti, sem spannar allt sumarið. Ég efast um að nokkur 16 manna hópur keppi meira innbyrðis en Mulningsvélin gerir. Allir eru keppnismenn af ástríðu og fá því útrás eins og á árum áður fyrír keppnisskapið. Eiginkonur félag- anna eru nú virkir þátttakendur, en eðli málsins samkvæmt voru þær mikið útundan í gamla daga. Golf- ferðir bæði erlendis og hérlendis hafa því styrkt vináttuböndin enn frekar eftir því sem árin hafa liðið. Eg fullyrði að allir félagarnir eru ánægðir með Bergur Guðnason Meðlimir hinnar frægu Mulningsvélar Ágúst Ögmundsson Bergur Guðnason Bjarni Jónsson Einar Einarsson Geirarður Geirarðsson Gísli Blöndal Guðmundur Frímannsson Gunnsteinn Skúlason Hilmar Björnsson Jón Ágústsson Jón H. Karlsson Jón Pétur Jónsson Jón Breiðfjörð Ólafsson Ólafur H. Jónsson Stefán B. Gunnarsson Þórður B. Sigurðsson 7 Valsblaðið

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.