Valsblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 19
Valsmenn
Höfum eftirforondi oð
leiðorljósi:
Góðir siðir fyrir iðkendur.
1. Ég er stundvís, mæti alltaf a.m.k. 10 mín. fyrir æfingar og á réttum tíma í leiki.
2 Eg er jákvæður og í góðu skapi á æfingum og í leikjum, því mér finnst gaman í íþróttum.
3. Ég mótmæli aldrei úrskurði dómara.
4. Ég kem kurteislega fram við mótherja, því ég vil að hann komi vel fram við mig.
5. Ég legg mig alltaf 100 % fram.
6. Ég tek sigri með hóflegri gleði og tapi með jafnaðargeði.
7. Ég hjálpa samherjum eins og ég get á æfingum, í leik og hvar sem er.
8. Ég geng vel um búningsklefa, íþróttasali og íþróttavelli, bæði á Hlíðarenda og annars
staðar þar sem ég kem sem mótherji, gestur eða áhorfendi.
9. Ég ber virðingu fyrir Valsbúningnum og geng snyrtilega frá honum eftir leiki. Sama gildir
um aðrar eignir Vals.
10. Ég er í íþróttum fyrir s/álfan mig, af því að það er hollt og skemmtilegt en ég reyni líka alltaf
að vera félaginu og mínum nánustu til sóma, innan sem utan vallar.
Góðir siðir fyrir foreldro:
1. Mætið á leiki og æfingar. -Börnin æskja þess.
2. Hrósið öllum leikmönnum á meðan leik stendur. -Ekki aðeins dóttur þinni eða syni.
3. Hvetjið börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs. -Ekki gagnrýna.
4. Berið virðingu fyrir störfum þjálfarans. -Ekki reyna að hafa áhrif á hann á meðan
leik stendur.
5. Lítið á dómarann sem leiðbeinenda barnanna. -Ekki gagnrýna ákvarðanir hans.
6. Hafið áhrif og hvet/ið börnin til þátttöku. -Ekki þvinga þau.
7. Spyrjið hvort leikurinn hafi verið skemmtilegur. -Urslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.
8. Leitið eftir réttum og skynsamlegum árangri. -Ekki gera of miklar kröfur.
9. Sýnið starfi félagsins virðingu. -Verið virk t.d. á foreldrafundum, þar er ykkar vettvangur.
10. Gerið ykkur grein fyrir því að það eru börnin ykkar sem eru að spila leikinn.
-Börn eru ekki fullorðið fólk.
Láttu ekki tóbaksframleiðendur
plata þig upp úr skónum!
19 Valsblaðið