Valsblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 15

Valsblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 15
a 3 f Kristinn Geir á æfingu með Glasgow Celtic. Þjálfarinn fók eftir því að drengirnir höfðu breyst, þeir voru farnir að blóta á enska tungu auk þess sem þeir voru hrokafullir og leiðinlegir. Það er aðeins eitt meðal sem dugar á svona fólk.... lets go shopping". Þjálfarinn og liðsstjórinn tóku hirðina með sér í bæinn. Nú lyftist brúnin á drengjunum. En hvað var pundið margar íslenskar krónur? Siggi Sæberg ruglaðist á pundi (120 krónur) og Gyllini (40 krónur) og keypti svolítið mikið af skóm. Sérstakur drengur því hann keypti skó númer 41, 42, 43, 44 og 45 enda er Siggi ennþá að stækka. En ævintýrið var rétt að byrja. Agúst spilaði með unglingaliði Hibernian gegn Glasgow Rangers í stórleik ferð- arinnar! Leikurinn fór 2-2 og stóð Gústi sig frábærlega enda hentar skoski bo Itinn honum mjög vel. Kristinn Geir vildi ekki vera eftirbátur Gústa og fór til Irlands með Glasgow Celtic og spilaði gegn írsku liði. Leikurinn fór 5-2 fyrir Celtic og spilaði Kristinn mjög vel að eigin sögn (það fór reyndar enginn með honum til Irlands). Strákarnir fóru einnig á æfingu hjá St.Mirren og síðan fóru Stebbi og Siggi á æfingu hjá aðalliði Rangers. Nú styttist í heimför og allir orðnir leiðir á kæk/um hvors annars en þó ætluðum við að gera eitthvað skemmtilegt saman síðasta kvöldið. Því var farið niður í bæ og stefnan sett á diskótek. En Skotar eru fágað og vandað fólk sem hleypir ekki hverjum sem er inn á diskótek, því urðu Þórarinn, Sigurður og Stefán frá að hverfa en hinir héldu áfram. Það lýsir einmitt móralnum í lok ferðarinnar að okkur hinum var alveg sama þó að þremenningarnir kæmust ekki inn á dískóið. Á búllunni var svaka stuð, greinilega mikið af skoskum námsmönnum (námumönnum)að taka út námslánin sín. Við Islendingarnir skárum okkur eilítið úr og fyrr en varði voru skoskar yngismeyjar farnar að abbast upp á okkur. Fyrirmæli þjálfarans voru skýr; you can look but you can't touch! Við hugsuðum hlýtf til Harðar Hilmars hjá IT-Ferðum enda eðalstaður þetta diskó. Allt gott tekur endi og fyrr en varði var Þórarinn liðsstjóri kominn til að ná í okkur og auðvitað var þjálfar- inn skammaður fyrir að draga litlu drengina á diskótek. SVEIATTAN!!!!!! Þorlákur Már þjálfari 2.flokks karla. Haustið 1996 fóru nokkrir áhuga- menn um getraunir innan Vals í gang með svokallaðan Húspott Vals. Hann er þannig uppbyggður að hver og einn getur keypt hlut í pottinum og kostar hver hlutur 1000 kr. Einnig hefur getrauna- nefnd Vals tekið þátt í pottinum til þess að styrkja hann Þessi tilraun hefur gengið nokkuð vel og hafa vinningar komið nokkuð reglulega í pottinn, einu sinni hefur potturinn fengið 13 rétta, nokkrum sinnum 12 rétta og oft 11 rétta. Getrauna- sérfræðingar félagsins koma á laugardögum og fara yfir leikina og síðan er settur upp seðill og fer það eftir þátttökufjölda hve öflugur seðillinn verður. Nú þurfum við að stækka pottinn duglega til að gera þetta meira spennandi og til að möguleikarnir verði meiri á 13 rétt- um. Hér með er skorað á alla félagsmenn Vals sem áhuga hafa á ensku knattspyrnunni og hafa gaman af getraunum að koma á laugardögum skrá sig í pottinn og vera með. Einnig verður hægt að skrá sig í pottinn hjá húsvörðum, um leið og menn koma á æfingar, leiki eða eiga bara leið um Hlíðarenda. Hægt er að greiða með greiðslukortum. Einnig geta menn gerst áskrifendur að pott- inum í ákveðið margar vikur eða allt árið. Nú þegar eru komnir nokkrir fastir áskrifendur en okkur vantar fleiri. Hægt að dreifa greiðs- lum t.d. mánaðalega með greiðs- lukorti. Ganga þarf frá því á skrif- stofu félagsins hjá markaðs- og fjármálastjóranum. Sérfræðingarnir pæla í 13 réttum. 15 Valsblaðið

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.