Valsblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 35

Valsblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 35
Knattspyrnu- þáttur Ur endurminningum séra Friðriks Friðrikssonar Nú hefst hér þáttur, sem er mér einna hugljúfastur af minningum þessara ára; minningum, sem reyndust drjúg- um þýðingarmiklar fyrir mig seinna meir. Það eru minningar um það, hvernig ég komst í kynni við knatt- spyrnuíþróttina. Tildrögin voru komin áður en ég fór austur. Nokkrir pilfar komu til mín og spurðu, hvort þeir mættu ekki stofna knattspyrnuflokk á grundvelli K.F.U.M. Ég gaf samþykki mitt til þess með því móti að allt færi siðsamlega fram. Ég hafði aldrei haft aðra hugmynd um knattspyrnu, en að það væru hlaup á eftir knetti eða boIta, sem sparkað væri í, svo að hann kæmist sem lengst, og hlypu menn svo hver í kapp við annan að ná knettinum. Ég þóttist sjá að þetta væri holl og góð hreyfing úti í vor- og sumarloftinu. Ac5 þetta væri reglu- bundin íþrótt, datt mér ekki í hug. Svo var félag stofnað meðan ég var fyrir austan, og í fullum gangi, er ég kom heim. Ég vissi varla um það, og skifti mér heldur ekki af því. I þessu voru margir af mínum bestu piltum, sem ég treysti hið besta til allrar siðlegrar framkomu. Svo skömmu eftir heimkomu mína komu forstöðumenn flokksins og báðu um leyfi til að halda fund inni í litla sal eitt kvöld. Svo var fundurinn haldinn. Ég sat á lestrarstofunni a<3 skrifa, og heyrði aðeins óminn af því, sem talað var, og einstaka orð. Mér fannst á tón- inum að eitthvað væri að, og einhver gremja; mér datt ekki í hug að blanda mér í það, en mér duldist ekki að eit- thvert sundurlindi ætti sér stað. Svo, er fundurinn var að enda, kom einhver til mín og bað mig um að koma inn og enda fundinn með bæn og guðsorði. Ég gjörði það og valdi nokkur vers úr 2. kap. bréfsins til Filippíborgarmanna: "Ef nokkuð má sín upphvatning vegna Krists, .... þá gjörið gleði mína fullkomna með því að vera samhuga, hafa sama kærlei- ka af eigingirni eða hégómagirnd o.s.frv." Ég talaði út frá þessu um sam- drægni í leik og félagsskap og hvernig sérdrægni með monti og yfirgangi sundraði allri gleði í leik og lífi. Ég talaði um þá, er í félagsskap væru "félagsskítir" o.s.frv. án þess að gefa nokkuð í skyn, að ég væri hræddur um að eitthvað væri bogið hjá þeim. Svo skildu menn, en tveim dögum seinna komu þrir af forgöngumönnum knattspyrnuflokksins og færðu mér frá félagsmönnum nýjan hatt að gjöf, sem þakklæti fyrir orð mín á fundinum, og jafnframt létu þeir þá ósk í Ijós, að ég vildi einhvern tíma koma suður á mela og enda hjá þeim. Næsta æfin- garkvöld fór ég suður á mela. Á órud- du svæði, afmörkuðu, rétt við veginn fram á Grímsstaðaholt, voru þeir að leik sínum. Þeir þeyttu þessum knetti og hlupu; mér fanst það vera einn hringlandi og gauragangur. Ég tók eftir því, að einn af piltunum sat langt fyrir sunnan þá, sem voru að leika sér, og hann var þar einmana eins og í öngum. Ég varð hræddur um að þeir hefðu rekið hann úr leiknum, og gekk því til hans og spurði, því hann væri ekki með í leiknum. ffann var hinn kátasti og sagðist vera hér að verja markið, og væri hann í "gulli". Ég sá tvær litlar grjóthrúgur með dálitlu milli- bili. Mig furðaða á þessu, og brátt sá ég að leikurinn færðist nær og þá varð hann í fjöri og funa og ég skildi, að það ætti að koma kenttinum milli hrúganna og hann ætti að reyna að afstýra því. Mér varð og Ijóst að tveir jafnmannmargir flokkar kepptu og heyrði hve mörg "gull" hver hafði fengið. Ýms fleiri orðatiltæki heyrði ég, sem ég botnaði ekkert í. Þegar leikurinn var búinn og allir söfnuðust saman í hóp til að heyra guðs orð, og ég var búinn að halda stutta bænargjörð, þá datt mér í hug að gaman væri að sjá, hvernig menn röðuðu sér upp til byrjunar. Þeir gjörðu það, en á minna svæði. Ég stóð fyrir utan, við miðlínuna. Það stóðu 5 hver á móti öðrum, þrír þar fyrir aftan, þannig að þeir báru í milli- bilin; þá þar fyrir aftan tveir og svo einn sér aftast. Allt í einu skeði nokkuð, sem ég aldrei hef getað gjört mér fulla grein fyrir. Það var sem eld- ing lysti niður beint fyrir framan mig. Ég stóð litla stund alveg agndofa. Ég sá víðan orustu völl og rómverska "legio" uppraðaða til bardaga. Ég sá hvernig skorirnar í fremstu línu stóðu með sínum millibilum. Ég sá skorir annarar línunnar standa þannig að hver skor í aftari linu svaraði til millibils í hinni fremstu, og þriðja línan var þar á bak við. Sýnin hvarf og önnur kom í staðinn. Það var taflborð með reitum sínum og mönnum. Ég fann að leikur, sem þannig væri skipaður, væri lög- bundinn af sinni hernaðarlist, þar sem hver maður hefði þýðingu á sínum stað, og væri liður í heild. Ég fann að þessi leikur gæti haft afarmikla uppeldisþýðingu. Ég fann að það fór titringur um mig af áfjáðleik eftir að kynnast þessum leik út í æsar. Allt þetta tók miklu styttri tíma, en þarf til að lýsa því. Þetta varaði ekki svo lengi að það vekti athygli piltanna. Vér gengum svo heim á leið, og ég var talsvert hljóður. Næsta dag fór ég og náði mér í enska bók um þennan leik. Síðan van- taði mig ekki á nokkru leikkvöldi, er ég gat mætt. Við nánari kynni af leiknum sá ég að þessi æfingarstaður var alveg ófær og talaði um það við “Val", en svo höfðu þeir gefið flokknum nafn. Svo fór ég til Páls borgarstjóra Einarssonar og sótti um leyfi til að ryðja þarna svæði fyrir oss. Hann tók mæta vel í það og fengum vér fyrir milligöngu hans leyfi til að ryðja þar nægilega stórt svæði og hafa það svo lengi sem bærinn þyrfti ekki á því að halda. Nú hófst undursamlegur samvinnutími. Á hverju kvöldi mætti hópur af Valsmönnum úti á melum með verkfærum, skóflum, hökum og hjólbörum. Svæðið var mælt út og síðan rutt af mesta kappi. Það var mikið verk. Það var unnið og hamast í hálfan annan tíma, en á laug- ardagskvöldum var unnið til kI. I eða 2. 35 Valsblaðið

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.