Valsblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 42

Valsblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 42
4 fl. kvenna: Berglind í. Hansdóttir, Kristín Geirarðsdóttir, Lísa Njólsdóttir, Margrét Ásgeirsdóttir, Marín S. Madsen, Tinna Baldursdóttir, Tinna Þorsteinsdóttir, Berglind Ó. Guðmundsdóttir, Elfa B. Hreggviðsdóttir, Kristín Þ. Haraldsdóttir, Oddný Sófusdóttir, Svanhildur Þorbjörnsdóttir, Svanhvít Helga Rúnarsdóttir, Dröfn Kærnested sum lífsglöðu islendingum. Svo mikil var kátínan að kynnirinn, Sven Sivertsen, varð að róa áhorfendur niður og biðja öryggisverði um að færa öskrandi aðdáendur í burtu. Þetta var álíka stemmning og þegar Bítlarnir mættu til USA. Eftir kynning- una stjórnuðu Valskrakkarnir stórum hópdans og þar sameinuðust hönd í hönd ýmsar þjóðir sem hafa barist hart undanfarin ár, svo sem Palestínu- menn og Israelar og hin ýmsu þjóðar- brot Júgóslavíu. Þar sungu leikmenn „We are the World'' og „gleymdu ekki þínum minnsta bróður/ þó höfog álfur skilji að". Á sunnudeginum byrjaði svo mótið sjálft, Partille-Cup, sem er sterkasta unglingamót í heimi. Það sást strax að hópurinn var í fínu formi enda hafði hann æft fjórum sinnum í viku í maí og júní. Lyftingarnar hjá Nonna, útihlaupin og tækni- æfingarnar brutust út á þessu heimsmeistaramóti unglinga. Vals- menn vöktu strax lukku fyrir fallega framkomu, glæsilega ACO og Esso búninga og síðast en ekki síst hand- bolta á heimsmælikvarða. Islendingar búsettir víðsvegar í Gautaborg fjöl- menntu til að hvetja krakkana. 4. fl. karla var með tvö lið og hafði Sigurður Sigurþórsson umsjón með A-liðinu en hann og Jón Halldórsson hafa einmitt þjálfað '81 og '82 árgangana undan- farin átta ár eða síðan 1900 og eitth- vað og þeir eiga þessa stráka frá A-O. Davíð Olafs. sá um B-liðið hjá strákunum sem samanstóð af strákum af yngra árinu. kvenfólkið var einnig með tvö lið og sá Eivor um B-liðið en Valur Orn um eldra árið, þ.e. A-liðið. Öskar Bjarni, yfirþjálfari,hljóp á milli og reyndi að hjálpa öllum en þar sem var svo langt á milli valla þá missdi hann af flestum leikjunumll A kvöldin var boðið upp á diskótek og land- sliðskeppni undir 18 ára. Handboltinn hafði vinninginn oftast nær en að sjálf- sögðu var kíkt á böllin en Svíarnir voru hálffurðulegir í lagavali. Það sást greinilega á mánudagskvöld eftir riðlakeppnina að Valsstrákarnir væru til alls líklegir. Það var nefnilega lands- liðskeppni um kvöldið og þá sendu hvert lið þrjá leikmenn til að spila saman sem landslið á móti hinum lön- dunum. Markús, Snorri og Ólafur markvörður spiluðu fyrir hönd strákan- na og Tinna, Kristín Þóra og Berglind Iris markvörður fyrir hönd stelpnanna. Strákarnir spiluðu til úrslita en töpuðu með einu marki á móti Svíum. A-liðið hjá strákunum var mun sferkara en landslið Islands (með allri virðingu fyrir hinum liðinum) og því urðu menn nokkuð vongóðir. Það fór svo þannig að A-liðið hjá strákunum vann hvert stórliðið á fætur öðru og á fimm- tudeginum 3. júlí var komið að stóru stundinni, úrslitaleikur á móti Savehof í Savehof höllinni. Islendingar fjölmen- ntu í höllina og Valskrakkarnir máluðu sig en Svíar fjölmenntu einnig og það stemmdi í meiri spennu en í úrsli- taleiknum á HM '90 þegar Svíar mættu Rússum. Hitinn í húsinu var óhugnarlegur og spennan yfirþyrm- andi. Þegar leikmenn beggja liða hlupu inn þá leist mönnum ekkert á blikuna því Svíarnir voru með stórf og stæðilegt lið og dómararnir frá Stokk- hólmi. Hvernig átti að sigra Svía á heimavelli með heimadómara? Svíarnir voru yfir allan leikinn en Vals- menn náðu að jafna í lokin. Leikurinn endaði því jafnt og því var bráðabani það eina sem kom til greina. Boltanum var kastað upp og þeir sem yrðu fyrstir til að skora myndu vinna Partille-Cup. Markús vann uppkastið og Valur fékk því boltann. Strákarnir spiluðu upp á öruggt færi og loksins kom að því, einum fleiri gekk stimp- lunin niður í vinstra horn til Arnars og hann skoraði á eftirminnilegan hátt. Áhorfendur, sem höfðu staðið sig ótrúlega vel, þustu inn á og „We are the Champion" var spilað undir gleði- öskur Valsara. Allir leikmenn áttu frá- bæran dag og Snorri Steinn, fyrirliði, var valinn besti leikmaður Valsmanna enda stjórnaði hann liðinu eins og hershöfðingi. Svíarnir mundu varla hvenær lið frá Islandi hafði komist svona langt hvað þá sigrað. Það var árið 1980 sem það gerðist og þá voru það einnig Valsmenn sem sigruðu. Það lið varð gullaldarlið Vals seinna meir en þeir sem spiluðu úti voru leik- menn eins og Geir Sveinsson, Júlíus Jónasson, Jakob Sigurðsson og Guðni Bergsson undir dyggri stjórn Tobba Jens og Jóns H. Karlssonar. En Fannar Örn sonur Þorbjarnar spilaði einmitt leikinn gegn Savehöf. Á föstudeginum 4. júlí fór hálf þreyttur en þó stoltur hópuryfir til Danmerkur. A-lið strákan- na hafði sigrað, B-lið strákanna náði næst bestum árangri af öllum íslensku Föngulegur hópur Valsmanna kemur til landsins eftir frækna för til Svíþjóðar og Danmerkur. Valsblaðið 42

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.