Valsblaðið - 01.05.1997, Blaðsíða 10
Besti leikmaður:
Rósa J. Steinþórsdóttir
Efnilegasti leikmaður:
Laufey Olafsdóttir
Feðginin Guðjón Magnússon og Hildur Guðjónsdóttir ó paejumóti í Vestmanna-
eyjum í sumar þar sem Hildur var valin leikmaður mótsins. mynd: Þ. Ó.
umferðir var liðið með 10 stig en þá
var Sigurði Grétarssyni vikið úr starfi
og Þorlákur Árnason þjálfari 2.flokks
karla tók við liðinu. Liðið rétti aðeins
úr kútnum undir lokin með því að
vinna 3 af síðustu 5 leikjunum en
8.sætið var engu að síður staðreynd
sem er lakasti árangur liðsins frá upp-
hafi. I Mjólkurbikarkeppninni komust
Valsmenn í 8 liða úrslit en töpuðu 1 -5
fyrir IBK eftir framlengdan leik.
Ljósið I myrkrinu er sá fjöldi yngri leik-
manna sem er að koma upp hjá félag-
inu en þeir; Arnór Gunnarsson,
Grímur Garðarsson, Sigurður G. Flo-
sason, Jóhann Hreiðarsson og Stefán
Helgi Jónsson fengu allir að spreyta
sig í síðustu leikjum mótsins. Þessir
leikmenn geta vonandi fyllt þau skörð
sem Jón Grétar Jónsson, Anthony Karl
Gregory og Jón S. Helgason skilja
eftir sig en þeir hafa ákveðið að legg-
ja skóna á hilluna. Knattspyrnudeild
Vals hefur lagt mikla vinnu í að halda
rekstrarkostnaði í lágmarki og hefur
það tekist ágætlega. Afþessum sökum
lendum við í erfiðleikum með að
halda góðum leikmönnum og einnig
að fá góða leikmenn til okkar. Hins
vegar má segja að það sé erfitt að
keppa við félög sem geta eytt miklum
fjármunum í að kaupa leikmenn þann-
ig að árangurinn er eftir því.
Besti leikmaður: Lárus Sigurðsson
Efnilegasti leikmaðurinn:
Ivar Ingimarsson
Meistaraflokkur kvenna
Meistaraflokkur kvenna tók þátt í
mörgum mótum á liðnu keppnistíma-
bili en þó voru Islandsmótið utanhúss
og Coca Cola Bikarinn aðalmót sum-
arsins. Stelpurnar stóðu sig ágætlega
í sumar og lentu í 3.sæti í Islands-
mótinu. I bikarkeppninni komust Vals-
stúlkur í úrslit eftir frækilegan sigur á
KR I undanúrslitum en töpuðu 1-2 fyrir
Breiðablik sem hampaði bikarnum
annað árið í röð.
Liðið spilaði á köflum mjög skemmtile-
ga knattspyrnu en varnarleikur liðsins
var ekki nógu góður. KR og Breiðablik
höfðu nokkra yfirburði síðasta sumar
en Valsliðið ætti að geta blandað sér í
toppbaráttuna næsta sumar enda búa
leikmenn liðsins yfir miklum hæfileikum.
2.flokkur korlo:
2.flokkur karla átti frábært tímabil,
liðið varð Reykjavíkurmeistari, Islands-
meistari og bikarmeistari og átti það
svo sannarlega skilið. Leikmenn
lögðu gífurlega vinnu á sig allt tíma-
bilið og uppskáru eftir því. Tæknilega
séð er liðið mjög gott auk þess sem
liðið var í góðu líkamlegu ástandi. I
flokknum eru leikmenn sem eiga eftir
að ná langt í framtíðinni vegna
hæfileika, vilja og umfram allt hugar-
fars leikmanna sem er ótrúlega gott.
Þjálfari flokksins var Þorlákur Árnason
og liðsstjóri Þórarinn Gunnarsson.
Besti leikmaður: Arnór Gunnarsson
Mestu framfarir: Sigurður Sæberg
Þorsteinsson
2.flokkur kvenna
Það var mikið að gera hjá 2.flokki
kvenna á síðasta keppnistímabili.
Flestar stelpurnar léku nefnilega einn-
ig með meistaraflokki auk þess sem
margar þeirra léku með landsliði
Islands. Álagið var því gífurlegt og
kom það sérstaklega niður á 2.flokki
kvenna. Einnig var erfitt að halda út
æfingum í þessum flokki þar sem
flestar stelpurnar eru lykilmenn í meist-
araflokki. Stelpurnar komust þó í úrsli-
taleik Islandsmófsins en töpuðu þar
fyrir KR. Það eru margar mjög efnile-
gar stelpur í flokknum sem eiga eftir
að láta að sér kveða I framtíðinni.
4 flokkur kvenna
Valsblaðið 10