Valsblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 33

Valsblaðið - 01.05.1997, Qupperneq 33
Fjallgangan Smásaga Það leit út fyrir að þetta yrði góður dagur. Hann hefði vitað hvað hann var að gera þegar hann valdi einmitt þennan dag til að framkvæma langþráðan draum sinn. I dag skyldi sá draumur verða að veruleika. Hann stóð fyrir utan t/aldið sitt og virti fyrir sér stórfenglegt útsýnið. Hann hafði komist upp að efstu tjald- búðunum daginn áður og ákveðið að klífa síðasfa spölinn í dag. Hann teygaði ferskt fjallaloftið og er hann andaði frá sér þá myndaðist frostgufa sem dofnaði smám saman og varð að engu. Hann leit í kringum sig með velþóknun. Ferðafélagar hans höfðu kvatt hann áhyggjufullir daginn áðurog óskað honum alls hins besta. Þeir skyldu ekki þessa áráttu í honum að klífa einn og höfðu marg- beðið hann um að snúa við. En honum var ekki haggað. Hann hafði bitið þetta í sig alveg frá því um daginn þegar hún yfirgaf hann. Hún. Svipur hans breyttist ögn, varð viðkvæmnislegur við tilhugsina. Hann hafði ekki átt hana skilið, hvorki hana né litla drenginn þeirra. Hann var ekkert nema ónytjungur sem ekkert gat nema drukkið sig fullan og eyði- lagt líf annara. Nei, núna ætlaði hann að sanna sig. Með því að klífa þetta fjall var hann að sanna fyrir sjálfum sér að hann gæti gert það sem hann ætlaði sér. Hann ætlaði að hefja nýft líf, breyta lifnaðarháttum sínum til hins betra og reyna að vinna hana aftur til sín. Sólin var farin að stíga upp á himininn og nýfæddir geislar hennar þröngv- uðu sér leið á milli hárra fjallanna á unga manninn sem stóð þarna svo ful- lur eldmóði. Hann fór hratt yfir búnaðinn og lagði síðan af stað. Þetta var erfiðara en hann hafði búist við. Isinn var þykkur og harður og það tók á að negla naglana inn í ísbergið. Hann beit á jaxlinn og hægt og rólega fikraðist hann upp á móti, nær tak- markinu. Hann hafði stundað fjallgön- gu í fjölda ára og taldist því vera nokkuð vanur fjallgöngumaður. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem hann hafði farið í svona leiðangur en aldrei hafði hann farið einn. Það var allt önnur til- finning sem fylgdi því. Honum fannst sem hér væri einvígi milli hans og heimsins. Einvígi sem hann varð að vinna. Það var farið að líða á daginn þegar hann loksins komst upp á tindinn. Þetta hafði verið tæpt á stundum. Það var ekki fyrir neina viðvaninga að klífa þetta fjall. Um tíma var hann vonlítill um að komast alla leið. Hann lagði frá sér búnaðinn og leit í kringum sig. Allt í kring blöstu við fjallatoppar, sumir voru umluktir skýjabólstrum, aðrir sköguðu upp úr, háir og hrikalegir og buðu mönnum byrginn. Það var sem hann væri staddur á allt annari pláne- tu. Hann fylltist nokkurs konar lot- ningu, hann fann fyrir smæð sinni þegar hann stóð frammi fyrir dyrum hins óendanlega og frá hjarta hans leið þakkarbæn til æðri mátta. Hann dvaldi á tindinum í nokkurn tíma. Hann varð auðvitað að setja mark sitf á staðinn, ekki það að hann væri eini maðurinn sem hefði klifið fjallið, heldur til sönnunnar á því að hann hefði komist alla leið. Upp úr vasa sínum dró hann lítinn fána. Þennan fána hefði litli dreng- urinn hans gefið honum áður en hann lagði af stað í þessa ferð. „ Þennan fána áttu að láta standa á toppnum, pabbi," hafði hann sagt. Hann kom fánanum tryggilega fyrir í snjónum og lagði af stað niður. I fjars- ka sást móta fyrir skýjabökkum. Ferðin niður gekk mun betur en ferðin upp. Hann tíndi jafnóðum naglana úr ísberginu sem hann hafði neglt á leiðinni upp og fór sér í engu óðslega. Hann var nú kominn niður erfiðasta hjallann og allt leit út fyrir að síðasti spölurinn yrði auðveldur. Það var byr- jað að hvessa örlítið og skýjabakkinn var farinn að þéttast. Unga manninum var einkennilega létt í skapi. Það var sem öllum heimsins áhyggjum hefði verið svipt af honum. Hann reisti sér háar skýjahallir og hugsanir hans snérust um framtíðina. Vonir hans glæddust um betri framtíð, hann átti nú möguleika á að vinna hana aftur. Núna skyldi hann taka sig á. Honum tókst að klífa tindinn einn síns liðs, í hjarta hans kviknaði von og hún glæddist eftir því sem hugsanir hans urðu dýpri og innilegri. Að lokum fylltist hann svo mikilli gleði að hann fórnaði höndum til himna og hrópaði upp fyrir sig. Bergmálið af hrópum hans endurvarpaðist frá fjalli til fjalls, í sömu andrá dró ský frá sólu. Hátt upp í fjallinu, í einu gilinu, hafði safnast saman mikill snjór. Hér og þar höfðu miklar snjóhengjur myndast og lítið þurfti til að koma þeim á hreyfin- gu. Jafnvel lítið hróp nægði. Hengjurnar brustu undan þunga sn/ósins og féllu fram yfir sig. Það var eins og stífla hefði brostið. Drunur heyrðust og snjór flæddi niður hlíðarnar. Þetta var mikið snjóflóð og ekkert sem á vegi þess var átti sér nokkra undankomu. Sólin er horfin á bak við fjöllin. Síðustu geislar hennar hafa náð að varpa roða á himininn og sveipað fjallgarðinn einhverri undarlegri dulúð. Friðsæld ríkti yfir staðnum. En þó sést einhver hreyfing ef vel er að gáð. Uppi í fjallshlíðinni eru menn. Þeir standa í skipulegri röð og stinga öðru hverju stöfum á kaf í snjóinn. Hátt uppi, fyrir ofan þá, á toppnum blaktir lítill fáni. Höfundur ókunnur 33 Valsblaðið

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.