Búnaðarrit - 01.01.1969, Page 27
IÍRISTJAN KAULSSON
17
tvö ár. Þá var hann skipaður í milliþinganefndir til at-
liugunar og tillagna um ýmis landbúnaðarinál, m. a. að
gera tillögur um framlialdsnám búfræðinga 1955, í milli-
þinganefnd til að endurskoða lög um landnám, ræktun
og byggingar í sveitum 1956. Einnig var liann kosinn
varaformaður í stjórn Búnaðarfélags íslands.
Kristján naut almenns trausts og vinsælda í Skagafirði,
einkum lijá samstarfsmönnum sínum og sveitungum —
öllum þeim, er þekktu liann bezt. Engum duldist vökul
umhyggja hans, athygli og framsýni í störfum. Og talið
var, að búreksturinn á Hólum bæri sig betur en á öðrum
ríkisbúum.
Ég bjó í næsta nágrenni við Kristján tuttugu ár, og
með engum öðrum manni hefur mér fallið samstarf
betur en með honum. Sama má segja um öll kynni okkar
og samskipti. Hann var nærgætinn og hlýr, traustur og
trygglyndur. Þótt hann í samskiptum okkar veitti mér
jafnan rneir en hann þá, vissi hann ekki af því sjálfur.
Hófstilling lians var sérstæð og jafnframt öll reglusemi í
smáu og stóru. Honum var fjarri allur metingur. Hann
undi sér bezt þar, sem liann gat uiinið störf sín á hljóð-
láta vísu og án þess að láta á sér bera. Sýndarmennska var
honum mjög fjarlæg, en heilnæm kímnigáfa geðgróin.
Oft lieyrði ég hann flytja ræður. Þær vorn jafnan vel
byggðar og rökfastar, án skrúðmælgi og fjölyrða. Ég
greindi jafnan glögglega stærðfræðinginn bak við ræð-
una. Leituðu orð hans ætíð staðar.
Þótt Kristján væri alhliða námsgáfum gæddur og
margs konar nám því verið lionum skapfellt, er það trúa
mín, liefði hann á unglingsárunum liaft næg fjárráð, þá
mundi liann liafa lokið slúdentsprófi og síðan kosið verk-
fræði að lokanámi. Þar liefði liann vissulega notið sín
vel. Stærðfræðileg viðfangsefni á verkfræðinga vísu
mundu hafa oröið honum hugleikin og vel við liæfi.
Ekki er það furða um slíkan afkastamann sem Krist-
ján var, að hann gengi fram af sér í starfi á Hóhim og
2