Búnaðarrit - 01.01.1969, Page 110
100
BÚNAÐARRIT
undan strönd Svíþjóðar. Ferðin í lieild var lœrdóms-
rík og skemmtileg. 1 framlialdi af áðurnefndum fyrir-
lestri Olle Nilsson um ormaveiki í búfé tókst samstaða
með Búnaðarfélagi Islands, lieildverzlun Guðna Ölafs-
sonar hf. og Leo A. B. í Helsingborg um að fá Olle Nils-
son og Lennart Sorelius búfræðing til að flytja erindi
um ormaveiki í búfé og hagkvæma notkun lyfja á fundi
í Reykjavík. Sá fundur var lialdinn í Búnaðarþingssaln-
um í Bændaliöllinni um miðjan ágúst sl., en þá voru
báðir fyrirlesararnir staddir hérlendis. Þennan fund sátu
flestir héraðsráðunautar og aðrir leiðbeinendur bænda,
er þessi mál varða. Um réttaleyti ferðaðist ég tvo daga
með þremur Svíum, dir. Fredrik Wehtje, auðugum fjár-
bónda, bústjóra hans og dr. Jönsson dýralækni. Sýndi
þeim réttir, fjárrag, beitilönd og einstakar fjárhjarðir
á Suðurlandi. Töldu þeir sig hafa haft mikil not og
ánægju af förinni. I sambandi við val sauðfjár á Land-
búnaðarsýninguna ’68 urðu ferðadagar 9 um Suðurland.
Þá heimsótti ég að sjálfsögðu á árinu stofnræktarbúin
og fjárræktarbúið að Hesti, auk þess ýmis önnur einstök
bii, er of langt mál yrði upp að telja, og að sjálfsögðu
60 ára afmælishátíð Búnaðarsambands Suðurlands. Ferða-
dagar urðu alls 80 á árinu í þágu starfsins.
Skrifstofan
Þar voru störf með sama hætti og næstliðin ár, bréfa-
skriftir, persónulegar viðræður og símtöl. Unnar greinar-
gerðir um ríkisframlög vegna stofnræktarbiia, sæðinga-
stöðva og geitfjárræktar, yfirfarnar fjallskilareglugjörðir
og lagafrumvörp framsend Búnaðarfélagi Islands til um-
sagnar frá landbúnaðarráðuneytinu og Alþingi. 1 desem-
bermánuði fór mikill tími í að vinna úr og gera yfirlits-
töflur um niðurstöður heysýna 1968. Ég skrifaði auk
starfsskýrslu f jórar greinar um sauðfjársýningar í 81. árg.
Búnaðarritsins og grein um sauðfjárrækt í bókina „Bætt-
ir eru bændahættir“, auk greina í Frey og fréttatilkynn-