Búnaðarrit - 01.01.1969, Page 155
SKÝRSLUR STARFSMANNA 145
til áburðardreifingar og fræsáningar. Grasfræið var sem
fyrr aðallega túnvingull.
Það má lieita, að flugvélin sé búin að leysa af liólmi
fyrri aðferðir, sem notaðar hafa verið til áburðar- og fræ-
sáningar á vegum Landgræðslunnar.
Landgræðslan eignaðist á árinu aðra áburðarflugvél.
Var ráðizt í þetta í fyrsta lagi til öryggis, ef eittlivað
óhapp kæmi fyrir þá vél, sem fyrir var, og svo einkum
til að geta veitt sveitarfélögunum þessa þjónustu, þ. e.
að bera á beitilönd bænda, þar sem engin önnur tiltæk
ráð eru til að auka og bæta beitilöndin en með áburðar-
og fræsáningu úr flugvélum.
Þá sá Landgræðslan um áframbaldandi uppgræðslu
í Þjórsárdal fyrir Landsvirkjun, og var á árinu sáð í
60 liektara, sem tókst með ágætum eins og fyrra árið.
Um 30 hektarar af eldri sáningu voru notaðir til hey-
skapar, og var þar orðin mokslægja um mánaðamótin
júní og júlí.
Uppgræðslan í Þjórsárdal hefur að vonum vakið mjög
mikla atliygli og ekki sízt fyrir þá sök, að í dalnum eru
einvörðungu vikurdyngjur, sem liæpið er að kalla jarð-
veg.
Lionsklúbburinn Baldur í Reykjavík liélt áfram hinu
stórmerkilega uppgræðslustarfi við Hvítárnes í Biskups-
tungnaafrétti, og var á árinu dreift áburði og fræi á
40—50 liektara svæði.
Landgræðsla ríkisins annaðist að mestu dreifingu, og
var það að sjálfsögðu gert með flugvél.
Haldið var áfram uppgræðslu í A.-Skaftafellssýslu, og
eru nú sandatúnin að nálgast 1000 liektara í sýslunni.
Þessi mikilvæga aðstoð við sveitarfélögin befur gjör-
breytt búskaparbáttum bænda í viðkomandi héruðum,
svo sem A.-Eyfellinga, Sólheiminga og A.-Skaftfellinga.
I öllum þessum sveitum voru landþrengsli mikil.
Landgræðslan befur styrkt bag sinn á árinu og í ríkari
mæli mælt skilningi fólksins í landinu fyrir þörfinni á
10