Búnaðarrit - 01.01.1969, Page 216
206
BÚNAÐARRIT
Þegar niigildandi lög um Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins voru sett, var taliö, að þeir tekjustofnar, sem henni
voru þá ákveðnir, mundu efla hag deildarinnar það
mikið, að hún byggði sig upp og yrði fjárhagslega
sterk stofnun.
Þróun síðustu ára hefur hins vegar orðið sú, að
Stofnlánadeildin hefur tapað háum upphæðum vegna
gengisbreytinga, svo að tekjuöflun til hennar hefur ekki
náð tilgangi sínum.
Mál nr. 31
Erindi Stéttarsambands bœnda um rekstrarlán landbún-
aðarins. Lagt fram af stjórn Búnaðarfélags fslands.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt
var með 21 atkvæði gegn 2.
Búnaðarþing telur algjörlega óviðunandi, að rekstrar-
lán til landbúnaðarins skuli enn standa óbreytt að krónu-
tölu frá því árið 1959. Þessi lán hafa því lækkað hlut-
fallslega, sem nemur auknu magni og verðgildi sauð-
fjárafurða frá þeim tíma.
Rekstrarfjárþörfin hefur liins vegar verið í lilutfalli
við liækkað verðlag á rekstrarvörum landbúnaðarins.
Fyrirsjáanleg er stórhækkun á verði tilbúins áburðar,
er gera mun fjölda bænda ókleift að kaupa áburðinn
á komandi vori, nema til komi stóraukin rekstrarlán,
eða niðurgreiðsla á áburðarverði.
Því felur þingið stjórnum Biinaðarfélags Islands og
Stéttarsambands bænda að gera allt sem unnt er til þess,
að raunhæfar úrbætur fáist á þessu sviði, og rekstrarlán-
in geti gegnt því lilutverki, sem þeim var upphaflega
ætlað.
GreinargerS:
Verðmæti sauðfjárafurða hefur aukizt úr 267,2 millj.
kr. reiknað með grundvallarverði ársins 1959 í 1,063