Búnaðarrit - 01.01.1969, Page 229
LANDBÚNAÐURINN
219
í N.-Þingeyjarsýslu voru enn meiri en árið áður og voru
þó mikil þá, og öll tún í ofanverðum Norðurárdal og í
Hrútafirði og norður eftir Strandasýslu og víða með sjó
í Húnavatnssýslu virtust aldauð. Mikil köl voru í fleiri
héruðum, einkum á hálendari og kaldari stöðum á Vest-
urlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi og í liálendari
sveitum á Suðurlandi. Miðnorðurland slapp þó furðu vel.
Engin teljandi ný köl voru í Eyjafirði og Suður-Þing-
eyjarsýslu. Lítlit var fyrir algjöran uppskerubrest á tún-
uin víða á norðanverðu landinu og litla uppskeru ann-
ars staðar. En öll él birtir upp um síðir. Með júlí koin
sumar og góðviðri. Meðalliiti í júlí varð 0,5° C yfir meðal-
tali. Þá spratt óskemmd jörð vel víðast livar og kalin og
liálfkalin tún tóku furðuvel við sér. Sláttur byrjaði alls
staðar mjög seint, þó einna fyrst á óskemmdum túnum í
innsveitum á Norðurlandi, einkum í Eyjafirði. Var þar
víða byrjað að slá fyrir og um miðjan júlí, en víðast livar
bófst sláttur ekki fyrr en seint í júlí og í byrjun ágúst.
Á Norðurlandi var beyskapartíð hagfelld í júlí og ágúst.
Hey náðust þá víða græn af ljánum, en sein spretta tafði
að sjálfsögðu lieyskap. Á Suðurlandi var liagstæð tíð í
fyrri bluta júlí, en þá gátu fáir notað sér liana vegna
grasleysis á túnum, en eftir að rigna tók á Suöur- og
Vesturlandi fyrir og um miðjan júlí spratt mjög ört, en
flestir bændur drógu slátt vegna úrkomu. Þetta leiddi til
þess, að töður spruttu mjög úr sér á sunnanverðu landinu.
I fyrri liluta ágúst var sæmileg beyskapartíð á Suður- og
Vesturlandi, en þó sjaldan samfelldir þurrkar marga
daga í senn. Tókst þá að ná upp miklum lieyjum, en
misvel verkuðum, og mörgum gafst ekki svigrúm til að
liirða í lilöðu nema lítið af því, sem þornaði. 1 síðari
liluta ágúst gerði aftur mikla óþurrka á Suður- og
Vesturlandi með óliemju roki og úrfelli um síðustu lielg-
ina í ágúst. Fuku þá um galtar, og óhemju magn af þurru
og hálfþurru lieyi skemmdist. Áttu bændur í stríði með
að þurrka þessi bey og birða þau í september, því þá var